13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1268 í B-deild Alþingistíðinda. (306)

1. mál, fjárlög 1929

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Það voru aðeins örfá orð út af ræðu hv. 1. þm. Skagf. Hv. þm. var allstúrinn og eins og honum væri þungt niðri fyrir í fyrri hluta ræðu sinnar, þar sem hann vjek að ummælum mínum út af ræðu hv. þm. Borgf. Hann sagði, að jeg hefði viljað slengja allri ábyrgðinni af afgreiðslu fjárlaganna á Íhaldsflokkinn. Þetta er alls ekki rjett. Jeg sagði ekkert í þessa átt, heldur hitt, að Íhaldsflokkurinn ætti nokkuð af ábyrgðinni. Og hv. þm. veit ósköp vel, að hún kemur niður á alla flokka. Á meðan við Framsóknarmenn vorum í minni hl., viðurkendum við þetta og bárum okkar hluta af ábyrgðinni. En ef hann heldur, að Íhaldsflokkurinn beri enga ábyrgð í þessu efni, þá fer jeg loksins að skilja í því, hvernig allir Íhaldsmenn hegða sjer á þessu þingi.

Jeg tek það ekki illa upp, þótt hv. 1. þm. Skagf. trúi ekki loforðum mínum. Jeg gaf honum það víst í skyn í gær, að jeg mundi ekki trúa honum, svo að þar etur hvor sitt.

Hv. 1. þm. Skagf. vjek í ræðu sinni að Titan. Í upphafi gat hann þess, að þetta með fyrirspurn hv. 1. þm. Árn. (JörB) hefði ekki verið annað en „leikaraskapur“ og „aftalað spil“. Það hefði verið ákveðið fyrirfram, að hv. 1. þm. Árn. skyldi bera fram fyrirspurnina og sömuleiðis, hverju jeg skyldi svara. Þetta lítur nú í fljótu bragði nógu vel út, en þegar sagan er öll sögð, verður það dálítið einkennilegt, að hv. 1. þm. Skagf. skuli líta þessum augum á þetta. Við 1. umr. fjárlagafrv. beindi einmitt hann fyrirspurn til mín út af þessu, og gekk allnærri mjer, þegar jeg var ekki viðbúinn að svara. Jeg lýsti þá yfir því, að jeg mundi gefa upplýsingar um þetta, þegar jeg væri búinn að taka mína afstöðu, og bjóst satt að segja við því nú, að fram kæmi fyrirspurn um þetta frá hv. 1. þm. Skagf. og hv. 1. þm. Árn. Þess vegna bjó jeg mig líka undir að svara og hv. 1. þm. Skagf. nýtur góðs af því; jeg sje, að hann er að lesa ræðu mína með mestu athygli, sem jeg afhenti honum afrit af áðan. Þetta er bein afleiðing þeirrar fyrirspurnar, sem þessi hv. þm. bar fram við 1. umr. fjárlagafrv. og jeg lofaði að svara. Annars lítur út fyrir, að hv. 1. þm. Skagf. sje búinn að gleyma þessari fyrirspurn sinni. (MG: Ó-nei). Hvað meinar hv. þm. þá með því að kalla það leikaraskap, þegar jeg svara fyrirspurninni ?

Jeg ætla ekki að ræða hjer um málið í heild sinni. Hv. 1. þm. Skagf. segir, að peningarnir sjeu til og að hann hafi sjálfur sjeð skilríki fyrir því. Það er nú svo. Jeg hefi sjeð þessi skilríki og legg fyrir mitt leyti þann dóm á, að þau sjeu ekki fullnægjandi um það, að fje sje fyrir hendi. Jeg veit það, að öðruvísi mundi á þetta litið, ef hv. 1. þm. Skagf. hefði setið í þessu sæti. Hann hefði komið með opinn faðminn á móti þessu útlenda fjelagi, þegar það bað um sjerleyfið.

Hv. þm. bað um að fá að sjá undirskriftaskjölin. „Originallinn“ er í stjórnarráðinu, en þau eru tekin orðrjett upp í ræðu mína. Hver, sem óskar, getur fengið að sjá frumritin.