08.03.1928
Neðri deild: 42. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3279 í B-deild Alþingistíðinda. (3077)
139. mál, varasáttanefndarmenn í Reykjavík
Hjeðinn Valdimarsson:
Af því að frsm. nefndarinnar er ekki viðstaddur, vil jeg leyfa mjer í nafni allshn. að mælast til, að málið fái að ganga til 2. umr. Málið er borið fram vegna sáttanefndar Reykjavíkur. Nú er það svo, að ekki er nema einn varamaður og hann skyldugur til þess að gegna þessu starfi, þegar kallað er. En hann getur haft þeim störfum að gegna, að þessi kvöð verði honum bagaleg, enda virðist öll sanngirni mæla með því að varamennirnir sjeu fleiri, og koma þá þessi störf ljettara niður.