24.02.1928
Neðri deild: 31. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3282 í B-deild Alþingistíðinda. (3094)
124. mál, laxveiði í Nikulásarkeri í Norðurá
Jörundur Brynjólfsson:
Jeg vildi aðeins benda á, að ker þetta mun vera opinber eign, þar sem það er eign Stafholtskirkju. Virðist því óþarft og óviðkunnanlegt að taka opinbera eign eignarnámi, og sýnist heppilegri lausn á málinu að leita samninga við prestinn og bæta honum skaða þann, er af veiðimissi leiðir. Þessi aðferð væri í alla staði viðfeldnari og rjettari.