24.02.1928
Neðri deild: 31. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3283 í B-deild Alþingistíðinda. (3097)

124. mál, laxveiði í Nikulásarkeri í Norðurá

Flm. (Bjarni Ásgeirsson):

Aðalatriðið er, að kerið sje friðað. Hitt er aukaatriði, á hvern hátt það er gert. Bændur hafa gert sjer mikið far um að komast að friðsamlegum samningum, en hafa ekki sjeð aðra leið færa en þessa. Jeg er ekki lögfræðingur og skal því ekki segja um þá hlið málsins, enda læt jeg mig engu skifta, hverri aðferð er beitt.