16.03.1928
Neðri deild: 49. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3296 í B-deild Alþingistíðinda. (3114)

124. mál, laxveiði í Nikulásarkeri í Norðurá

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Það er alveg óþarfi að taka málið af dagskrá. Málið liggur mjög ljóst fyrir. Presturinn í Stafholti hefir selt ker þetta á leigu undanfarið. Nú er borið fram frv. um, að hann leigi það laxveiðafjelaginu gegn árlegu gjaldi, en að leigan verði gefin upp eftir prestsins daga. Mjer finst óþarfi að bera fram brtt. um það, að bæturnar skuli haldast áfram. Þarf ekki annað en að bera 2. brtt. á þskj. 377 upp í tvennu lagi. Vil jeg skjóta því til hæstv. forseta, hvort það muni ekki vera tiltækilegt.