13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1295 í B-deild Alþingistíðinda. (312)
1. mál, fjárlög 1929
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg þarf ekki að tala langt mál. Það er orðið langt síðan hv. þm. Borgf. talaði og hefir fyrnst yfir það síðan. Jeg held, að jeg verði að mestu leyti að leggja það til hliðar, enda hefir hann nú haldið þær tvær ræður, sem hann hefir rjett til. Jeg vil þó taka það fram, að með því vil jeg ekki viðurkenna, að jeg fallist á alt, sem hann sagði.
Út af orðum háttv. 2. þm. Rang. (GunnS) vil jeg minna á, að fjelagið (Titan) hefir enn meira en árs frest, svo að það er tími fyrir þá, sem hafa trú á því, að þetta mikla mál verði leyst á þennan hátt, til þess að reka eftir fjelaginu með að afla sjer fjár.
Það getur vel verið, að eitthvert skjal snertandi þetta mál liggi hjá landbn., en jeg hefi ekki sjeð það.
Hv. 1. þm. Skagf. (MG) talaði nú mjög ítarlega um þetta mál, en jeg mun þó geta verið stuttorður. Hann vjek að því, að hjer væri leikinn Sjónleikur, sem hefði verið aftalaður fyrirfram. Jeg neita því algerlega, að nokkuð slíkt hafi átt sjer stað af minni hálfu eða minna samherja.
Hv. 1. þm. Skagf. beindi fyrirspurn til mín um þetta mál við 1. umr. fjárlagafrv. og heimtaði þá svar, en nú þykist hann ekki hafa ætlað að spyrja, af ótta við, að það mundi spilla fyrir málinu. En hvers vegna spurði hann þá? Í þessum orðum hv. þm. liggur eiginlega það, að hann hafi spurt til þess að spilla fyrir málinu.
Ef hann hefði ekki komið fram með sína fyrirspurn, hefði ekki verið um þetta rætt nú; en úr því að hún kom fram, áleit jeg mjer skylt að hafa svarið tilbúið.
Vitanlega hefir sennilega enginn, sem undir þetta umrædda skjal hefir ritað, gert það til þess að spilla fyrir þessu máli. Það, sem þeim hefir gengið til, er að fá bættar samgöngur um Suðurlandsundirlendið, og það er vel skiljanlegt, að þeir sjeu ekki ánægðir með, að fjelaginu sje veitt sjerleyfi til að leggja járnbraut þarna án þess að nokkrar líkur gætu talist til þess, að það hefði nægilegt fje til framkvæmda. Með því væri þessu samgöngumáli sama sem slegið á frest um óákveðinn tíma.
Væri jeg bóndi fyrir austan, mundi jeg ásaka þann ráðh. harðlega, sem veitti fjelagi slíkan einkarjett um mörg ár án þess að nokkur trygging kæmi á móti.
Hv. þm. (MG) sagði, að jeg hefði skift um skoðun. Jeg hefi aðeins lagt fram gögnin í málinu. Það er ekki það heldur, sem menn sækjast eftir, að fá útlent fje inn í landið, heldur hitt, að fá samgöngubætur. Jeg hefi lýst yfir því, að stjórnin mun taka það mál alveg sjerstaklega til athugunar, hvernig það verði leyst á sem heppilegastan hátt.
Háttv. 1. þm. Skagf. sagði, að það hefði verið hugsun þingsins í fyrra að taka bæði skrefin, að samþykkja sjerleyfislögin og veita sjerleyfið. En hvers vegna gerði hann það ekki? Hann hafði aðstöðu til þess, meðan hann átti sæti í stj. — Þá var hv. þm. (MG) ekki ánægður með mitt svar og nefndi það goðsvar. Þetta minnir mig á það, þegar sami hv. þm. líkti mjer við Janus, hinn vitra guð, sem horfði bæði fram og aftur. Samlíkingin á vel við nú, því að mín aðstaða í þessu máli ber vott um það, að jeg líti bæði fram og aftur.
Jeg hefi þegar svarað skýrt. Fjelagið Titan hefir lagt inn sjerleyfisbeiðni og jeg hefi svarað því, að jeg sjái ekki, að rjett sje að svara þeirri beiðni játandi. Í því liggur auðvitað, að sjerleyfið verður ekki veitt. Jeg hefi þannig svarað alveg skýrt. En sem sagt, hvernig jeg mundi taka í málið, ef það lægi svo og svo fyrir í framtíðinni, um það dettur mjer ekki í hug að gefa neina yfirlýsingu nú. Jeg álít, að það væri óhyggilegt að binda sig þannig fyrirfram um mál, sem menn vita ekki, hvernig kann að liggja fyrir síðar.
Hv. 1. þm. Skagf. talaði um brjef í sambandi við þetta og sagði, að jeg hefði sjeð það. Það er rjett, en jeg tel mig ekki hafa rjett til þess að skýra frá efni þess hjer. Hinsvegar hefi jeg með mínu svari lagt þann dóm á það, að jeg telji það ekki gefa tryggingu fyrir, að fjeð sje til, og jeg get meira að segja tekið svo ákveðið til orða, að jeg tel, að það sje mjög fjarri því, að þar sje um nokkra tryggingu að ræða.