09.03.1928
Neðri deild: 43. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3397 í B-deild Alþingistíðinda. (3178)
44. mál, hvíldartími háseta á botnvörpuskipum
Frsm. minni hl. (Ólafur Thors):
Jeg hefði ef til vill haft ástæðu til að svara hv. þm. V.-Ísf. nokkrum orðum, en af því að jeg hefi þegar tekið það flest eða alt fram, er hefði þurft til andsvara síðustu ræðu hans, mun jeg láta það hjá líða.
Jeg kvaddi mjer hljóðs til þess að láta hæstv. dómsmrh. vita, hvers vegna jeg gekk út úr deildinni áðan undir ræðu hans. (Dómsmrh. JJ: Það var rjett hjá þm. að fara út). Jeg gekk út vegna þess, að jeg fyltist slíkum viðbjóði, þegar hæstv. ráðh. fór að draga viðkvæma minningu gærdagsins inn í æstar umræður hjer í deildinni, að jeg sá þann kost vænstan að hverfa á burtu. Jeg veit, að þegar hæstv. ráðh. hugsar um þessa framkomu sína í einrúmi og sjer, hversu ódrengileg hún var, þá muni hann skammast sín, ef hann kann það. (Dómsmrh. JJ: Það er sjálfsagt af hv. 2. þm. G.-K. að skammast sín).