21.02.1928
Efri deild: 28. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3428 í B-deild Alþingistíðinda. (3201)
112. mál, vörutollur
Jón Baldvinsson:
Það eru sjálfsagt allir sammála um það, að ríkisbúskapurinn eigi að bera sig, þannig að tekjur og gjöld standist á. En um hitt má deila, hvaða leiðir sjeu heppilegastar og sanngjarnastar til þess að afla ríkissjóði tekna, eða hvort það skuli gert með beinum sköttum eða óbeinum, svo sem tollum og öðru slíku.
Jeg fyrir mitt leyti tel óbeinu skattana, eða tollana, rangláta, en beinu skattana það skipulag, sem rjettlátast komi niður á gjaldendum. Hinsvegar vil jeg viðurkenna það, að óbeinu skattarnir verða að standa um stund, þar til komið verður hinu rjetta framtíðarskipulagi á skattalöggjöf þjóðarinnar, sem að minni hyggju getur ekki orðið á aðra lund en að upp verði teknir beinir skattar að nokkru, og nokkuð af tekjunum komi sem hagnaður af landsverslun og opinberum atvinnurekstri.
Sem sagt held jeg, að allir sjeu sammála um, að tekjur og gjöld ríkissjóðs standist á. Jeg hefi aðeins heyrt einn mann segja það um stj., sem hann var á móti, að hún ætti ekki skilið að fá tekjuhallalaus fjárlög. En slíkt er gálauslega mælt.
Annars verð jeg að segja um frv., að eins og það er tel jeg algerlega rangt, að það verði að lögum. Jeg mun þó hjálpa því að komast til 2. umr. og fjhn., þangað sem jeg á sæti, í þeirri von, að takast megi að lagfæra stærstu gallana. Jeg álít þessa leið óheppilega, jafnvel þótt við um skeið höfum ekki getað komist hjá henni til þess að afla teknanna. En nú skildist mjer á hæstv. fjmrh., að hann hefði fleiri leiðir í huga um öflun tekna, og þótt hann ekki flytji þær í frumvarpsformi, þá á hann sjálfsagt tal við fjhn. um það, hversu hann vill hjálpa við fjárhagnum. En bæði þessi frv. eru þess eðlis, að mjer sýnist tæplega gerlegt að láta þau ganga í gegn óbreytt.