21.02.1928
Efri deild: 28. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3430 í B-deild Alþingistíðinda. (3202)
112. mál, vörutollur
Jón Þorláksson:
Jeg verð að segja það, eftir að jeg hefi heyrt hæstv. fjmrh. hálft um hálft gangast við þessu frv. sem stjfrv., þá tel jeg öldungis sjálfsagt, að það fái að ganga til 2. umr. og nefndar, sem jeg þó hefði talið vafasamt, ef það hefði komið frá einhverjum þingmönnum.