07.03.1928
Efri deild: 41. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3439 í B-deild Alþingistíðinda. (3207)

112. mál, vörutollur

Frsm. 1. minni hl. (Jón Þorláksson):

Jeg verð eins og hv. frsm. 2. minni hl. að biðja hæstv. forseta um leyfi til að mega víkja jafnhliða þessu máli að næsta máli á dagskrá, af því að jeg get ekki komist hjá að vísa nú þegar í nál. okkar hv. 1. þm. G.-K. á þskj. 371 um þetta næsta mál.

Í því nál. höfum við reynt að leggja fram þær tölur, sem hljóta að koma til greina, þegar meta skal, hvort þörf sje á tekjuauka fyrir ríkissjóð, og ef svo reynist, þá hve miklum.

Meðaltal ríkissjóðstekna 3 síðastl. ár nemur rúmlega 12 milj. kr. árlega, eða í reyndinni 12¼ milj. kr., þegar þess er gætt, að áfengisverslun ríkisins hefir ekki skilað öllum ágóða sínum í ríkissjóð, heldur safnað í rekstrarsjóð handa sjálfri sjer, en þeirri söfnun er nú lokið.

Hv. frsm. 2. minni hl. hjelt því fram í ræðu sinni, að taldir væru með í þessu yfirliti tekjustofnar, sem feldir voru niður árið 1926. En svo er ekki. Þær tekjur, sem af þeim komu í ríkissjóð, eru dregnar frá heildarupphæðinni, svo sem sjálfsagt var. Þá vildi hv. frsm. finna það að þessum tölum, að árin hefðu verið svo misjöfn, og hefði árið 1925 verið óvenjulegt tekjuár. Það er rjett, að þetta ár er með í meðaltalinu, en þegar litið er á næstu árin tvö, 1926 og 1927, má óhætt segja, að þau hafi verið venju fremur tekjurýr ár. Því get jeg ekki fallist á, að þetta þriggja ára meðaltal sýni ekki nokkurn veginn, hvers má vænta næstu árin. Nú í byrjun þessa árs er óhætt að segja, að það horfir miklu vænlegar um hina fjárhagslegu afkomu atvinnuveganna, einkum sjávarútvegarins, sem mestar tekjur gefur í ríkissjóð, en síðastliðið ár. Mjer finst því, að menn geti vænst þess, að nú sje að fara í hönd ár, er standist fyllilega meðaltal hinna þriggja hvað fjárhagsafkomuna snertir.

Þá vísaði hv. frsm. í þann tekjuhalla, sem varð á árinu 1927 — um 800 þús. kr. — og ljet í ljós ótta um það, að eins kynni að fara nú. En þá er á það að líta, að á árinu 1927 var veitt í fjárlögum fullum 700 þús. kr. meira til útgjalda en á yfirstandandi ári. Jeg hafði ekki farið dult með það, að mjer þætti þetta of mikið og að jeg óttaðist, að tekjurnar mundu ekki samsvara þessum útgjöldum, eins og líka raun varð á. En mjer sýnist ekki mikil hætta á, að tekjuhalli verði á yfirstandandi ári. Jeg tel ennfremur, að möguleikar sjeu fyrir því, eftir öllum líkum og horfum, að ekki þurfi að veita meira til útgjalda í fjárl. nú en 10,4 milj. króna, eins og er veitt fyrir yfirstandandi ár, og lít svo á, að með því sje hægt að halda öllum venjulegum framkvæmdum í horfi. Því til stuðnings vil jeg benda á, að fjárlagafrv. fyrir árið 1929 er nú komið gegnum 2. umr. í Nd. og útgjöldin ekki orðin meiri en 10,1 milj., og eru þá eftir 300 þús. kr. til þess að ná fjárl. fyrir 1928. Ef það væri nú talið sæmilegt og ekki ógætilegt, eins og venja hefir verið á þingi, að reikna fyrir framtíðina með meðaltali þriggja undanfarinna ára, þá mætti gera ráð fyrir rúmlega 12 milj. kr. tekjum, og ætti þá að vera óhætt að veita 10,4 milj. til útgjalda, og þó hægt að ná tilgangi hv. meiri hl., því að eftir upplýsingum hæstv. fjmrh. hafa gjöldin 1927 ekki farið fulla miljón fram úr áætlun fjárlaganna.

Hv. frsm. 2. minni hl. sagði, að 1. minni hl. teldi enga þörf á tekjuauka. Þetta er nú ekki alveg rjett. Við höfum einmitt bent á hitt, að vegna þeirra nýju útgjaldaauka, sem hjer eru á ferðinni, yrði ekki komist hjá að auka tekjurnar nokkuð, en við teljum, að samkv. okkar brtt. mundu fást um 230000 kr. tekjur, sem mundu nægja til nauðsynlegra útgjalda vegna væntanlegra laga um byggingar- og landnámssjóð og um búfjártryggingar. Þau tvö af þeim útgjaldafrv., sem fyrir þinginu liggja, gerir 1. minni hl. ráð fyrir, að verði samr. Hin önnur frv., er fara fram á aukningu árlegra útgjalda, telur hann, að þoli a. m. k. bið.

Hv. frsm. veitti mjer viðurkenningu fyrir það, að jeg hefði ekki viljað reka þjóðarbúið með halla, en sagði, að nú væru orðin veðrabrigði hjá mjer í því efni. Þetta kannast jeg alls ekki við. Jeg hefi gert grein fyrir því, að jeg vildi ekki leggja á þjóðina álögur vegna óþarfra útgjalda, og það er alt annað. Það hittist svo á, er þessi harðhenta skattastefna var upp tekin, að það komu góð ár og afkoma manna var yfirleitt góð. 1924 og 1925 voru yfirleitt góð ár, einkum fyrir sjávarútveginn, sem gáfu ríkissjóði miklar tekjur, sem voru notaðar fyrst og fremst til að greiða lausaskuldir, enda voru skattarnir lagðir á beinlínis með það fyrir augum. En það sýndi sig brátt, að þessar þungu álögur stóðu atvinnuvegunum mjög fyrir þrifum, eins og reikningar bankanna best sýna, þó að þetta væri óhjákvæmilegt eins og á stóð. Jeg hygg nú, að eftir að nýbúið er að rjetta við hag ríkissjóðs, þá ætti helst að stuðla að því, að atvinnufyrirtækin gætu notið sem mest ávaxta sinnar iðju til þess að greiða bankaskuldir og tryggja sinn hag. Við álítum rjettara að nota það fje, sem væntanlega kemur frá landsverslun, til þess að fylla það skarð, sem orðið hefir við halla ársins 1927, en að ná því inn með nýjum sköttum, enda ekki þörf á því. Sje farin sú leið, að leggja á þjóðina skattabyrðar fram yfir það, sem talist getur beinlínis nauðsynlegt, verður það beint til að ýta undir þær till. til útgjaldaauka í löggjöfinni, sem nú eru á ferðinni. Hitt teldi jeg rjettara, að reyna að hafa hemil á þessum lögákveðnu útgjaldaaukum. Hitt er vitanlega sjálfsagt, að veita einhvern tekjuauka vegna þeirra útgjaldaauka, sem telja má, að þegar sjeu ráðnir. Það er eitt atriði, sem hv. frsm. mintist á, sem ef til vill gæti breytt þessu, ef það væri rjett. Hann sagði, að það væri að verða samdráttur í Sjávarútveginum. Slíkt er mjer ekki kunnugt um. Þvert á móti segja mjer allir, að útgerð sje nú með mesta móti, og meðan jeg heyri ekki nánari grein gerða fyrir þessu, get jeg ekki tekið það til greina sem ástæðu fyrir þörfinni á nýjum sköttum.

Jeg vænti, að jeg hafi nú með þessum orðum gert grein fyrir stefnu okkar minnihlutamanna í þessu máli, svo að ljóst sje. Við teljum, að hægt sje að halda verklegum framkvæmdum í landinu alveg í sama horfi án þess að sjerstaklega sje aflað tekna í því skyni, að því tilskildu, að útgjöldin sjeu ekki aukin úr hófi fram á öðrum sviðum.