13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (321)

1. mál, fjárlög 1929

Sigurður Eggerz:

Hæstv. forseti (BSv) mæltist til þess, að umr. hjer snerust ekki um of um Titan. Jeg mun nú verða við þessari beiðni hans og drepa aðeins á nokkur höfuðatriði. Jeg hefi jafnan verið andvígur sjerleyfi til Titans af ýmsum mjög alvarlegum ástæðum, sem hjer verða ekki taldar. Á höfuðatriðin vil jeg drepa. Jeg tel óverjandi, að erlendir menn megi ráða hjer yfir fje, sem getur numið 100 milj. kr. eða meira, og jeg vil benda á, hvernig slíkt erlent „kapital“ hefir komið ýmsum stærri þjóðum en okkur á knje. Jeg hefi ekkert á móti því, að erlent fje komi hingað, ef við ráðum yfir því sjálfir. Hæstv. forsrh. hefir nú í skjóli þess meiri hluta, sem hann hefir fengið, og í skjóli sinnar eigin sannfæringar, sbr. aðstöðu hans á síðasta þingi, kveðið þennan draug niður. Jeg þakka honum fyrir það. Alt er gott, þegar endirinn er góður. Einnig þakka jeg þeim góðu mönnum, sem hafa snúist í þessu máli, því án þeirra hefði aðstaða hæstv. forsrh. orðið erfið.