11.02.1928
Efri deild: 20. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3553 í B-deild Alþingistíðinda. (3288)

40. mál, bæjarstjórn í Neskaupstað í Norðfirði

Guðmundur Ólafsson:

Jeg á brtt. á þskj. 135, en hafði ekki ætlað mjer að tala fyrir henni, einkum eftir að háttv. frsm. meiri hl. allshn. vjek að henni í ræðu sinni og ljet á sjer skilja, að honum þætti hún ekki óeðlileg. Jeg geri ráð fyrir, að flestir háttv. þingdeildarmenn geti skilið, hvers vegna jeg ber fram till. um lækkun á launum væntanlegs embættismanns á þessum stað um 1000 kr. Jeg hefi til þessa verið andstæðingur þessa máls, en er nú farinn að þreytast á því og held kannske, að þessar óskir sjeu ekki algerlega út í loftið og þessi rjettindi sjeu kauptúninu ekki lítils virði, að minsta kosti að þess eigin áliti. En jeg hefi ekki hingað til verið manna fúsastur á að fjölga opinberum starfsmönnum. Og þegar ekki með öllu verður hjá því komist, vil jeg ekki ausa til þess meira fje en nauðsyn krefur. Mjer komu því undarlega ummæli háttv. 3. landsk., er hann var að tala um leikaraskap í sambandi við mig og till. mína. Jeg held sannast að segja, að háttv. þm. hafi sýnt meiri leikaraskap það sem af eru þessu þingi en jeg.

Jeg álít, að þessum embættismanni sje nóg að hafa laun sýslumanna. Þeir fá ekki nema 4200 kr. byrjunarlaun, er hækka eftir 3, 6 og 9 ár upp í 5200 kr. Jeg býst við, að nógir yrðu til þess að sækja um embættið fyrir því, með því að enginn hörgull er á hæfum mönnum í það. Og jeg skammast mín alls ekkert fyrir það, þótt jeg vilji spara, og það þótt sá sparnaður nemi ekki nema 1000 kr. Annars skiftir vitanlega ekki miklu máli, hversu fer um þessa brtt. En úr því að hlutaðeigendur, sem til þekkja, telja þetta nógu há laun, hjelt jeg, að aðrir stæðu sig ekki við að setja sig upp á móti því.