16.02.1928
Neðri deild: 24. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3566 í B-deild Alþingistíðinda. (3298)

40. mál, bæjarstjórn í Neskaupstað í Norðfirði

Sveinn Ólafsson:

Jeg sje ekki ástæðu til að elta ólar við hv. þm. Borgf. út af því, er hann sagði um spádómshæfileika mína, enda hygg jeg, að við sjeum báðir álíka spámannlega vaxnir.

Um það, hve honum er starsýnt á þetta nýja og óreynda fyrirkomulag með breytingu sveitarstjórnarlaganna, vil jeg aðeins geta þess, að hann hefir þá hugmynd sína frá hv. 3. landsk., sem í Ed. reyndi að fleyga málið með þessu. Og reynslan mun líka sýna, að erfitt verður að koma svona málum fyrir á annan veg en frv. þetta ráðgerir.

Fyrir nokkrum árum var reynt á svipaðan hátt að færa út og auka verksvið hreppstjórans á Norðfirði, og var sú till. borin undir stjórnina og nefndir þings, en alt strandaði á vöntun lagaheimildar. Embætti þetta, sem hlaut að verða launað af því opinbera, hafði alveg sömu skilyrði til launahækkunar, þótt maðurinn, sem því gegndi, væri nefndur hreppstjóri. Jeg sje engan mun á því, hvorn titilinn þessi starfsmaður ber, þegar hann hefir sömu störfum að gegna og bæjarfógeti. Honum mundi hjer falið miklu stærra verksvið en vanalegum hreppstjóra, og þess vegna er líka víst, að hann gerði líkar kaupkröfur og venjulegir bæjarfógetar.

Nei, jeg geri ekkert úr þessari dagskrártill. hv. 3. landsk. og háttv. þm. Borgf.; jeg lít á hana eins og ljettvæga og fánýta tilraun til þess að eyða málinu.