20.01.1928
Neðri deild: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í B-deild Alþingistíðinda. (33)

Kosning fastanefnda

Ólafur Thors:

Jeg tel, að ekki sje til of mikils mælst, þó að þessi ósk um frest, sem jeg ber fram, yrði uppfylt að svo miklu leyti, að kosning fari ekki fram fyr en næstkomandi mánudag. Jeg geri ráð fyrir, að þótt nefndin yrði kosin í dag, mundi hún ekki starfa neitt sem næmi til þess tíma.

Og verði ekki Framsóknarflokkurinn við svo sanngjarnri tillögu sem þessari, þá sýnist það bert, að það, sem fram fór hjer í salnum í gær, er gert til þess að bægja Íhaldsflokknum frá rjettmætri þátttöku í nefndarskipun.