05.03.1928
Efri deild: 39. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3593 í B-deild Alþingistíðinda. (3327)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Frsm. (Erlingur Friðjónsson):
Jeg vil láta þessu frv. fylgja nokkur almenn orð um síldariðnað, nú þegar það liggur fyrir til 2. umr. Eins og kunnugt er, er síldariðnaðurinn yfirleitt ungur á Norðurlöndum og við Íslendingar skamt á veg komnir í þeirri grein. Sennilega eru frændur okkar Norðmenn einna lengst komnir í því efni, og vildi jeg því leyfa mjer að rifja upp aðaldrættina um upptök og framþróun þess iðnaðar hjá þeim til 1923.
Norðmenn byrja á síldariðnaði rjett fyrir aldamótin síðustu. Árin 1909–1911 kemur þó fyrst skriður á síldariðnaðinn hjá þeim. Á þeim árum eru bygðar í Noregi 16 síldarverksmiðjur Á þeim tíma er einnig farið að byggja síldarverksmiðjur hjer á landi, en þá eru þær að mestu eign Norðmanna. Á þessum fyrstu árum síldariðnaðarins í Noregi er að mestu notuð dúkpressan. Það er fyrst á árunum 1918–1919, að ameríska skrúfupressan fer að ryðja sjer til rúms í síldariðnaðinum í Noregi, enda vex þá útflutningur Norðmanna á síldarmjöli og síldarolíu mikið upp úr þeim árum, þó úr útflutningnum dragi aftur fljótlega, sem mun hafa stafað sumpart af lakari veiðiárum, en sumpart af því, að minni og lakar útbúnu síldarverksmiðjurnar hafi gefist upp í samkepninni við hinar stóru nýtísku verksmiðjur.
Útflutningur Norðmanna á síldarolíu var á árunum 1920–1923 samtals 19340 smálestir, en á síldarmjöli 72058 smálestir. Árið 1923 eru 80–90 síldarverksmiðjur í Noregi með 18
milj. kr. höfuðstól í hlutafje. sjest á útflutningi Norðmanna á síldarafurðum og fjölda síldarverksmiðjanna, þó sumar þeirra hefðu þá ekki starfað frá árinu 1920, að síldariðnaðurinn er orðinn allveruleg atvinnugrein hjá frændum vorum Norðmönnum árið 1923, og hefir að sjálfsögðu aukist síðan. Eins og kunnugt er, hafa Norðmenn numið land í síldariðnaðinum hjer hjá oss, auk síns heimaiðnaðar í þessari grein. Það verður heldur ekki talið óeðlilegt, þótt útlendingar, sem þekkja þennan atvinnurekstur, sækist eftir því að ná tökum á honum hjer á landi, einkum þegar á það er litið, að verðgildi síldarinnar, sem notuð er til þess að vinna úr olíu og mjöl, fer mjög mikið eftir því, hversu fitumikil hún er. Því er líkt háttað með síldina eins og útigangsfjenaðinn. Vetur og vor er hún mögur, eins og jálkurinn, sem settur er á guð og gaddinn, en yfir sumarmánuðina júlí, ágúst og september rær hún í spikinu eins og stóðið í haganum. Þótt tíðum verði misbrestur á síldveiðinni hjer við land, eigum við Íslendingar því láni að fagna, að þegar síldin leitar upp að fjörusteinum okkar lands, er það aðallega á þeim tíma, þegar hún er feitust og verðmest. Norðmenn hafa veitt því eftirtekt, að Íslandssíld, eins og þeir kalla hana, þ. e. síld veidd við strendur Íslands í júlí, ágúst og september, hefir alt að 19% fitu. Ef telja mætti feitimagn síldarinnar 19%, myndi fást úr hverjum 1000 málum síldar rúmlega 25½ smál. af olíu.
Síðastliðið sumar reyndist síld sú, er veidd var, magrari en venja er til, en þó kom í ljós við rannsókn á sýnishorni, sem sent var til Reykjavíkur af Norðurlandi, að jeg hygg, að feitimagn hennar var 17%, eða sem svaraði 23 smál. af olíu úr hverjum 1000 málum síldar. Jafnvel þótt jeg telji, að óhætt myndi vera að gera ráð fyrir samkv. framansögðu, að úr hverjum 1000 málum af síld fáist 23–25 smálestir af olíu, tel jeg varlegra að áætla ekki fitumagn síldarinnar meira en 22 smál. úr 1000 málum. En það er líka það fitumagn, sem reynsla undanfarinna ára hefir leitt í ljós, að óhætt er að telja, að fáist úr júlí-, ágúst- og september-veiddri síld hjer við land, jafnvel þótt tæki til þess að vinna olíu úr síldinni sjeu ekki af nýjustu gerð, og safnþrór, sem síldin er geymd í, að meira eða minna leyti ófullkomnar.
Eins og kunnugt er, rjeði hæstv. ríkisstjórn hv. 3. landsk. á síðasta hausti til þess að rannsaka möguleika til byggingar og starfrækslu nýtísku síldarverksmiðju á Norðurlandi. Þinginu hefir fyrir nokkru borist skýrsla hv. 3. landsk. um rannsókn hans ásamt kostnaðaráætlun um byggingu og starfrækslu síldarverksmiðju, sem hann telur, að ætti að verða bygð á Siglufirði, ef út í byggingu hennar yrði lagt. Það, sem stingur mest í augun við lestur þessarar skýrslu hv. 3. landsk., er áætlun hans um tekjur slíkrar verksmiðju, sem eru tekjur af síldarmjöli og síldarolíu.
Jeg tel ekki ástæðu til að gera athugasemd við áætlun hv. 3. landsk. um tekjur verksmiðjunnar af síldarmjöli; þar virðist hann hafa farið eftir þektum fyrirmælum í áætlun sinni um mjölmagn, þar sem hann áætlar 24 smál. úr hverjum 1000 málum síldar. En áætlun hans um fitumagn síldarinnar skýtur allskökku við reynslu þeirra síldarverksmiðja, sem starfað hafa hjer á landi að undanförnu. Mjer er kunnugt um, að þær síldarverksmiðjur, sem telja má, að hafi sæmilegan útbúnað til þess að ná olíunni úr síldinni, reikna ekki með minna en 22 smál. af olíu úr 1000 málum síldar. En hv. 3. landsk. áætlar olíuna aðeins 19 smál. úr hverjum 1000 málum. Verður ekki sjeð, á hverju hann byggir þessa áætlun sína, sem er 3 smál. neðan við það, sem reynsla er fengin fyrir hjer á landi, að telja má meðallag, 4 smál. undir því, sem kom í ljós við rannsókn í sumar sem leið, að fitumagn síldarinnar var þá, og þótti síldin þó magrari þá en oft áður, og 6½ smál. minna, miðað við 1000 mál, en vísindalega er sannað, að fitumagn síldarinnar getur orðið á þeim tíma árs, sem við Íslendingar veiðum hana.
Þótt jeg hafi ýmislegt fleira út á áætlun hv. 3. landsk. að setja, ætla jeg að láta nægja í þetta sinn að leiða athygli að því, hvaða áhrif það hefir á árlegan hagnað verksmiðjunnar, að hv. 3. landsk. er að minsta kosti 3 smál. undir meðalútkomu með áætlun sína um olíumagn í hverjum 1000 málum af síld.
Hv. 3. landsk. telur hverja smál. af síldarolíu 505 kr. virði hjer á staðnum, að frádreginni fragt til útlanda. Þegar annar kostnaður en flutningsgjaldið, svo sem umbúðir og framskipun, er dreginn frá verði þessara 3 smálesta af síldarolíu, verða eftir krónur 1280,00, sem telja má hreinan hagnað af hverjum 1000 málum af síld, því að allur kostnaður við vinslu þessara 1000 mála er áður reiknaður af háttv. 3. landsk. Þessar 3 smál., af olíunni er það, sem jeg tel, að hann reikni of lítið í hverjum 1000 málum síldar.
Hv. 3. landsk. áætlar hagnað af hverjum 60 þús. málum síldar kr. 62–700,00, ef fyrir hvert mál sjeu greiddar 9 kr., eins og hafi verið samningsverð verksmiðjanna við útgerðarmenn 1927. Þegar við þennan hagnað er bætt þessum kr. 1280,00 af hverjum 1000 málum, sem jeg tel, að áætlun hans sje of lág, verður sá rjetti hagnaður kr. 139500,00 á hverjum 60 þús. málum síldar, eða kr. 76800,00 hærri en honum reiknast til.
Af 80 þús. málum áætlar háttv. 3. landsk. hagnað kr. 129600,00. sje við hann bætt áðurnefndum kr. 1280,00 af hverjum 1000 málum, verður sá raunverulegi hagnaður kr. 232000,00, eða kr. 102400,00 hærri en áætlun hans. sje dæminu haldið áfram, kemur í ljós, að þegar við hv. 3. landsk. leggjum saman okkar þekkingu í síldarverksmiðjumálinu, má vænta þess, að hagnaður af vinslu 100 þús. mála af síld verði áætlaður kr. 324500,00. Hann hefir sjálfur talið hagnaðinn af vinslu 100 þús. mála kr. 196500,00. Jeg tel, að hann hafi áætlað hagnaðinn of lágt um kr. 128000,00 samkv. framansögðu.
Þegar verið er að yfirvega, hvort ríkið eigi að leggja í byggingu og starfrækslu síldarverksmiðja, er að sjálfsögðu rjett að vera varkár í áætlunum um glæsilega afkomu slíks fyrirtækis. En eins og það getur verið hættulegt að áætla tekjur fyrirtækis eins og þessa of háar og útkomu of glæsilega, eins háskalegt getur það verið að fela fyrir sjer og öðrum líkurnar fyrir góðum árangri. Slíkur skollaleikur getur orðið til þess, að ekki verði lagt út í fyrirtæki, sem þjóðinni og einstaklingum hennar væri til stórhagnaðar. Við þurfum ekki annað en að líta á aðstöðu síldarútvegsins eins og hann nú er hjer á landi til þess að sannfærast um þetta.
Jeg þykist hafa hjer að framan fært sterkar líkur fyrir því, að síldarverksmiðjurnar hjer hafi greitt framleiðendum 2–3 kr. minna fyrir hvert mál síldar en þær hefðu getað, og gengið þó frá með sæmilegum hagnaði í meðalveiðiári. Þótt miðað sje við síðastl. ár, er óhætt að fullyrða, að það, sem sagt hefir verið hjer að framan, getur eins átt við reynslu á undanförnum árum, því að það er á allra vitorði, að síldarverksmiðjurnar hafa á undanförnum árum rakað saman fje á kostnað síldarútgerðarinnar. Hjer er því brýn nauðsyn til þess að hefjast handa.
Vera má, að einhver kunni að segja, að þótt álitleg áætlun liggi fyrir um afkomu slíks fyrirtækis sem síldarverksmiðju, þá sje hjer um að ræða áhættufyrirtæki, sem komið geti landinu á kaldan klaka, ef út í er lagt. Jeg vil svara þeim mönnum því, að áhættan við rekstur síldarverksmiðju liggur algerlega í fyrirkomulagi rekstrarins. Sje síldarframleiðendum greitt hæfilegt áætlunarverð fyrir þá síld, sem þeir leggja inn í síldarverksmiðjuna, þó ekki hærra en það, að ríkinu sje trygður sæmilegur hagnaður, er fyrirtækinu trygð góð afkoma og að öllum líkindum framleiðendum hærra verð fyrir vöru sína en þeir hafa átt að venjast að undanförnu. Reynist áætlunarverðið of lágt, mætti greiða uppbót á því við reikningslok hvers árs. — Verði þetta frv. um síldarverksmiðjur samþykt á þessu þingi, sem jeg teldi mjög hyggilega ráðið af þinginu, treysti jeg núverandi ríkisstjórn mjög vel til að láta starfrækja fyrirhugaða verksmiðju á þeim grundvelli, sem jeg hefi hjer bent á.
Jeg vil að endingu leyfa mjer að bera upp tvær spurningar fyrir hv. 3. landsk., sem gert hefir þá áætlun um rekstur síldarverksmiðju, sem jeg hefi gert hjer athugasemdir við:
1. Á hverju byggir hann þá áætlun sína, að ekki fáist nema 19 smál. af olíu úr 1000 málum af síld?
2. Getur hann ekki fallist á, að eins vel megi reikna með, að úr hverjum 1000 málum síldar fáist 22 smál. af olíu?