07.03.1928
Efri deild: 41. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3618 í B-deild Alþingistíðinda. (3339)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Frsm. (Erlingur Friðjónsson):
Mjer finst tæplega viðeigandi að láta brtt. hv. 3. landsk. fara svo til atkvgr., að ekki sje nánar um hana talað.
Jeg verð þá að segja, að hún kemur nokkuð seint fram. Henni er fyrst útbýtt nú á fundinum, og nefndin hefir ekki átt kost á að kynna sjer hana. En jeg get gefið þá yfirlýsingu sem flm. frv., að jeg tel hana ekki einungis óþarfa, heldur beinlínis hættulega. Jeg mun því greiða atkvæði á móti henni.
Það er harla einkennilegt, ef ríkið á að hjálpa til að koma þessu fyrirtæki á fót með því að bera sjálft alla mestu áhættuna, og svo á að fá það öðrum í hendur. Það er hart, að ríkið eigi að taka á sig allan stofnkostnaðinn, sem getur orðið um 1 milj. kr., en svo eigi það að láta verksmiðjuna af hendi, þegar farin er að verða arðsvon af henni.
Jeg vil því ekki gera tvent í einu: Veita stj. heimild og hvetja hana til að byggja verksmiðjuna fyrir fje ríkisins, og síðan leggja kvöð á hana um að gefa fyrirtækið öðrum á vald, þegar ísinn er brotinn.