07.03.1928
Efri deild: 41. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3620 í B-deild Alþingistíðinda. (3343)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Páll Hermannsson:
Jeg lít svo á, að brtt. á þskj. 396, frá hv. 3. landsk., sje til bóta. Í henni felst skýrara orðalag á því, sem átt var við í frv., eins og það er skýrt af hæstv. fjmrh. Í brtt. felst heimild, sem nauðsynleg er, ef til þarf að taka á sínum tíma. Mun jeg því greiða henni atkv. mitt.