23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3642 í B-deild Alþingistíðinda. (3354)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Jeg þarf ekki að svara hv. frsm. minni hl. mörgu. Jeg vil þó nokkuð víkja að því, er hann sagði síðast. Rök hv. þm. eru þessi: þekkingarleysi, vont að svara o. s. frv. Jeg skal ekki deila við hann um þessi atriði. En eitt er víst, að við skiljum hvor annan. Hann berst á móti því, að ríkið eða nokkur fjelagsskapur, sem samvinna nefnist, ráðist í síldarverksmiðjurekstur. (ÓTh: Jeg ber fram till. um, að ríkið hjálpi samvinnufjelagi útgerðarmanna. Er þm. ruglaður?). En mjer er fyllilega ljóst, að síldarverksmiðjuhringurinn h/f Kveldúlfur og útlendingarnir vilja einir sitja að krásinni. Allir vafningar hv. þm. utan um þetta eru svo augljósir, að allir eru nú farnir að sjá, fyrir hverju hann berst.
Jeg skil það vel, að hv. þm. vilji sem minst við mig tala um þessi mál, því hann veit það af langri reynslu, að fáir hjer í þessum sal sjá hann jafnvel í gegn í þessu máli. (ÓTh: Heyr á endemi!). Mig getur hann aldrei blekt. Það þýðir ekkert fyrir hv. þm. að vera að halda þeirri fjarstæðu fram, að meiri hætta sje fyrir ríkið en einstaka menn að bræða síld. Áhættan er fyrir báða jafnt í aflaleysisárum. (ÓTh: Hefir þm. ekki heyrt rök mín? Vill hann ekki hrekja þau?). En arður góðæranna á að geta dregið úr þeirri áhættu hjá ríkinu, en það verður ávalt eyðslufje hjá einstaklingunum samkvæmt reynslunni. Þá vill hv. þm. rökstyðja þessa áhættu með meðalsíldarfeng undanfarandi 14 ára. En þetta segir aðeins hálfan sannleikann, því ekkert segir hann, hve skipafjöldinn var mikill. Það eina rjetta er að taka meðalafla skips eftir tegund og bera það saman frá ári til árs. Skipafjöldinn eykst með ári hverju, eins við síldveiðar sem annan veiðiskap, og það hefir ekki hvað síst áhrif á síldarfenginn í heild.
Um verðfallið á síldarmjölinu skal jeg ekki þrátta við hann. Jeg vil ekki rengja hann um, að honum hafi boðist það, sem hann segir. En hitt er jafnvíst, að núverandi markaðsverð í Hamborg er á 1. fl. mjöli 15 sterlpd. smálest. En þess lætur hann ógetið, að verð á síldarlýsi er nú 27 sterlpd. smál., eða 1 sterlpd. hærra en hann hefir tilnefnt.
Jeg tilnefndi Ameríku og stórveldi í Evrópu sem dæmi um markaðshorfur í framtíðinni fyrir síldarmjöl. Hann gerði tilraun til að snúa út úr þessum orðum mínum. En veit hann þá ekki, að fróðir menn í þessum efnum erlendis halda því fram, að til þess að fullnægja eftirspurninni í Ameríku vanti 200 þús. smál. og í Þýskalandi er mögulegt að auka markað? Gert er ráð fyrir, að þýskur landbúnaður geti tekið á móti 450 þús. smál. Það er talin full vissa fyrir því, að síldarmjöl og lýsi muni verða mjög eftirspurð vara næst ár og verðlag stöðugt.
Þá kem jeg að síldarverðinu síðastl. sumar. Hv. þm. gerir lítið úr því, að menn hafi selt lágu verði. Það gildir hið sama um þetta sem margt annað; hv. þm. ber höfðinu við steininn og vill ekki kannast við staðreyndir. Fjöldi skipa varð að láta síldina fyrir 3 kr. síldarmálið, og fjöldi skipa fleygði henni í sjóinn, þegar hvergi varð losað og enginn vildi kaupa. Jafnvel samningsbundin skip urðu að sætta sig við óhæfilegar tafir og biðu eftir afgreiðslu útlendra skipa. Um hið samningsbundna verð hefi jeg áður getið. Þá talaði háttv. þm. um ráðningu háseta og sagði, að þeir væru oftast ráðnir fyrir hlut. Hann veit nú best sjálfur, hve mikill sannleikur er í þessu fólginn. Allir togarar, sem á síld hafa farið, guldu kaup og aukaþóknun, að undanteknum 2 á síðastl. sumri. Enda veit hv. þm., að hann hefir manna mest barist á móti því, að öðruvísi væri. (ÓTh: Þetta eru bein og vísvitandi ósannindi. Jeg bauð þessi kjör, en þm., sem er form. sjómannafjelagsins, þverneitaði). Á öðrum skipum hefir sjaldnar verið hlutur, heldur hin svonefnda „premía“. En það er rjett, að að því ber að stefna við síldveiðina, að skipverjar eigi rjettlátan hluta úr veiðinni. En það er með engu móti betur trygt, að þeir fái rjettlátt verð fyrir aflann en með því, að ríkið hafi verksmiðju, sem altaf getur gefið upp hið rjetta verð síldarinnar. Því það ástand, sem ríkt hefir, um sumpart lágt verð og falið verð, hefir fyrst og fremst komið niður á fiskimönnunum.
Fleiri atriðum í ræðu hv. þm. hirði jeg ekki um að svara. Hann hefir upplýst nóg til þess að sjá, hvar fiskur liggur undir steini. Jeg skal ekki orðlengja um þetta frekar. En málið stendur í nánu sambandi við annað mál, sem hjer er á dagskrá, frv. til laga um einkasölu á útfluttri síld. Verksmiðjan er ekki annað en trygging fyrir þá, sem háðir verða því sölu fyrirkomulagi, sem þar er gert ráð fyrir. Þarf hún því helst að komast á jafnhliða. Einkasalan er varhugaverð án hennar.