23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3645 í B-deild Alþingistíðinda. (3355)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Frsm. minni hl. (Ólafur Thors):
Jeg hafði ekki ætlað mjer að halda fleiri ræður, og veit, að allir virða mjer til vorkunnar, þótt jeg þykist ekki þurfa að svara síðustu ræðu hv. 4. þm. Reykv. En jeg heyrði, að hv. þm. Ísaf. lofaði að halda klukkutíma ræðu, ef jeg stæði upp, og vil jeg hvorki láta hv. deild verða af þeirri skemtun nje heldur þeirri fræðslu, er slík ræða mætti verða hv. þdm. Fleira hefi jeg ekki að segja, en vona, að hv. þm. standi við loforð sitt.