26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3653 í B-deild Alþingistíðinda. (3366)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Hv. 1. þm. Skagf. bar fram nokkrar spurningar til stjórnarinnar út af þessu máli og ljet fylgja þeim nokkur vel valin almenn ummæli. Skal jeg ekkert að ummælunum víkja, en mun svara spurningum hans, eftir því sem jeg get.
Jeg geri ráð fyrir því, að hv. 1. þm. Skagf. sje kunn forsaga þessa máls. Manni einum, mjög nákomnum í stjórnmálum hv. 1. þm. Skagf., var falið á síðastliðnu hausti að rannsaka þetta mál. Hann hefir nú framkvæmt þá rannsókn og skilað áliti sínu til stjórnarinnar, en síðan er tiltölulega stuttur tími og stjórnin síðan þá svo störfum hlaðin, að enginn getur með sanngirni ásakað hana, þótt hún hafi ekki tekið endanlegar ákvarðanir í þessu efni. — Fyrir því getur stjórnin ekkert um það sagt, hve mikið verður ráðist í eða hversu bráður bugur verður undinn að framkvæmdum þessa máls. Viðvíkjandi því, hvort eigi að taka verksmiðjuna á leigu, vil jeg geta þess, að það er rjett, sem hv. 2. þm. G.-K. sagði, að stjórninni hefir boðist verksmiðja, en sá maður, sem gert hefir stjórninni tilboðið, er ekki hjer, en mun bráðlega koma hingað til þess að ræða það mál.