26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3656 í B-deild Alþingistíðinda. (3369)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Frsm. minni hl. (Ólafur Thors):
Jeg hefði heldur kosið að vita, hvort hv. frsm. meiri hl. ætlar að taka til máls, áður en jeg tala aftur, því að mjer kæmi ver, ef hann rís upp, þegar jeg er dauður.
Það, sem mjer liggur á hjarta, er það, að hæstv. atvmrh., sem sýnir deildinni þann sóma að vera viðstaddur, fái skýrt og greinilega að vita, að hv. frsm. meiri hl. leggur þann skilning í lögin, að átt sje við, að ríkissjóður kaupi síldina fyrir ákveðið verð í samkepni við aðrar síldarbræðslustöðvar. Fyrir honum vakir það, að þetta verði til þess að hækka verðið á vörunni.
Jeg hefi við 2. umr. þessa máls leitt rök að því, að hjer er um allverulegt áhættufyrirtæki að ræða, og vil jeg ekki láta hjá líða að bókfesta, að þessum skilningi, sem hv. frsm. meiri hl. leggur í lögin, fylgi mikil áhætta.
Eftir að aðaltill. minni hl. hafa verið feldar, vakir það fyrir mjer, að ríkissjóður legði út fyrir starfrækslu stöðvarinnar, svo sem mannahaldi, kaupum á kolum og koksi o. s. frv. Hinsvegar verði hlutur útgerðarmanna þannig, að sá, sem vildi afhenda stöðinni síld til bræðslu, fengi útborgaðan þegar í stað nokkurn hluta andvirðisins. Endanlegt verð af allri þeirri síld, sem til bræðslu væri sett, væri síðan reiknað þannig, að frádreginn væri beinn kostnaður, vextir og stofnfje og í þriðja lagi nokkurt fje fyrir eðlilegri fyrning. Ef hinsvegar aðaltill. minni hl. hefði náð fram að ganga, myndi starfræksla slíkrar stöðvar áhættulaus fyrir ríkissjóð, en auk þess væru miklar líkur fyrir því, að útgerðarmenn bæru meira úr býtum en ella. En jafnvel þótt þær hafi verið feldar, mundi áhætta fyrir ríkissjóð ekki mikil, ef starfrækslan yrði með þeim hætti, er við leggjum til.
Aðaláhætta við þetta fyrirtæki er sú, að ekki berist hæfilegt magn til vinslu, við hóflegu veiði. Ef nú útgerðarmenn, sem skifta við verksmiðjurnar, eiga að engu leyti hag sinn undir rekstri þeirrar verksmiðju frekar en annara, þá vofir mikil áhætta yfir þessu fyrirtæki. Viti útgerðarmenn hinsvegar, að allur þeirra hagur sje undir því kominn, að nægilegt magn berist verksmiðjunni til vinslu, þá horfir málið alt öðruvísi við, vegna þess að þá eru líkur til þess, að útgerðarmenn í eiginhagsmunaskyni bindist samtökum um að skifta við þessa verksmiðju. Ef jeg vildi skifta við slíka bræðslustöð á hagkvæman hátt, myndi jeg snúa mjer til hæfilega margra útgerðarmanna og fá þá til að skifta við þessa bræðslustöð. Með því móti gætum við afstýrt mestri áhættunni, ef við værum hæfilega margir um skiftin.
Ef till. minni hl. um tilhögun starfrækslunnar hefðu þannig náð fram að ganga, hefði ríkissjóður orðið laus við áhættuna af fyrirtækinu, en hagur útgerðarmanna samt tvímælalaust orðið betri.
Hæstv. atvmrh. svaraði fyrirspurn hv. 1. þm. Skagf. á þann veg, að hann teldi ekki líklegt, að reist yrði nema ein bræðslustöð fyrir næsta þing. Nú vil jeg leiða athygli hæstv. ráðh. að því, að ef stjórnin hygst að reisa eina bræðslustöð, mun stofnkostnaður af því fyrirtæki verða 800 þús. kr. samkv. áætlun hv. 3. landsk. Ef hæstv. ráðh. gengur út frá því, að reist verði ein bræðslustöð, er sama og að hann segi, að stjórnin ætli að nota heimildina, því að þær 200 þús. kr., sem eftir verða, munu þá skamt ná til rekstrarkostnaðar.