26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3662 í B-deild Alþingistíðinda. (3374)

92. mál, síldarbræðslustöðvar

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil svara hv. 2. þm. G.-K. fyrst. Jeg mun telja mjer skylt, áður en ráðist verður í það að stofna þessa verksmiðju, að afla mjer mjög víðtækra upplýsinga um það, hvernig þessu máli skuli ráðið til lykta, og jeg mun gjarnan vilja ræða það við formann fjelags íslenskra botnvörpuskipaeigenda hjer í bænum. Jeg þarfnast margra upplýsinga og mun sækja þær í sem flesta staði. En hvað snertir skilning stjórnarinnar á þessu frv., vil jeg aðeins minna á það, að þar sem um heimildarlög er að ræða, er stjórnin ekkert bundin. (ÓTh: Ef á að framkvæma þau?) Já, hún getur meira að segja farið svo langt að nota ekki heimildina. Jeg ætla, að það hafi verið á þinginu 1925, að veitt var með lögum heimild fyrir stj. til að stofnsetja „lotterí“ með ýmsum skilyrðum, og jeg hygg, að af hálfu þeirra manna, sem sóttu um leyfið, hafi ekki staðið á því að uppfylla skilyrðin. Samt sem áður veitti fyrv. stj. ekki leyfið, og núv. stj. ekki heldur; m. ö. o., stj, er ekki bundin af neinum heimildarlögum, og jeg er heldur ekki bundinn af neinu að því er þetta frv. snertir, nema af því einu, að jeg má auðvitað ekki vera eftirgefanlegri en lögin segja.