26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3665 í B-deild Alþingistíðinda. (3378)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Jörundur Brynjólfsson:
* Hv. 2. þm. G.-K. hefir nokkrum sinnum vikið að því, að hv. frsm. meiri hl. í þessu máli hafi sagt, að það væri meining hans, að starfræksla á síldarbræðslustöðinni færi þannig fram, að hún kepti við aðrar síldarbræðslustöðvar og keypti síld háu verði. Jeg var nú ekki svo við þær umr., að jeg geti fullyrt, að þetta kunni ekki að hafa átt sjer stað. og jeg efast ekkert um, að þetta sje rjett hermt, sem hv. 2. þm. G.-K. hefir sagt. En hafi ummæli fallið á þessa lund hjá hv. frsm. meiri hl., þá lýsi jeg yfir því, að það er ekki í umboði mínu gert, því að jeg fyrir mitt leyti vil, að þessum atvinnurekstri sje hagað þannig, að hann verði sem allra áhættuminstur fyrir ríkissjóð. Jeg get um leið lýst yfir þeirri skoðun minni, að jeg lít á þetta sem óumflýjanlega ráðstöfun til að hjálpa útgerðarmönnum þessa lands, bæði með því að byggja síldarbræðslustöðvar og jafnframt að stofna síldareinkasölu. Þesskonar ráðstafanir skoða jeg sem óyndisúrræði að vissu leyti, er þannig þarf að grípa inn í atvinnulíf manna í landinu, og skyldi það því verða með sem minstri áhættu fyrir ríkissjóð. Hafi þess vegna fallið ummæli í þá átt, að keppa ætti við aðra framleiðendur, þá er það ekki sagt í umboði mínu, því að jeg vil, að starfstilhögunin verði sem hyggilegust og gætilegust.
(*Ræðuhandr. óyfirlesið.)