26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3666 í B-deild Alþingistíðinda. (3381)

92. mál, síldarbræðslustöðvar

2) Með svofeldri greinargerð:

Jeg tel það nauðsynlegt, að þetta fyrirtæki verði rekið á líkum grundvelli eins og hv. minni hl. hefir lagt til, þannig að útvegsmenn fengju raunverulegt verð fyrir síldina, þegar frá er dreginn tollur, sölu- og vinslukostnaður, en hinsvegar ekki lagt út í spákaupmensku. En með því að ekki hafa fengist nein ákveðin svör hjá hæstv. stjórn um það, hvora leiðina hún myndi velja, sem þó er sjálfsagt að segja ákveðið um, greiði jeg atkv. á móti frv. og segi nei.