29.03.1928
Efri deild: 60. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3671 í B-deild Alþingistíðinda. (3390)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Jeg kippi mjer ekki upp við það, þótt hv. 3. landsk. efist um þekkingu mína á síldarmálefnum. Jeg get þó sagt mjer til varnar, að jeg hefi ekki margfaldað eins rangt og hann í sambandi við þessi mál.
Jeg vil nú spyrja hv. 3. landsk.: Hvaða vit er í því, að landið taki 1 milj. kr. lán til að byggja bræðslustöð og selji hana síðan í hendur þeim mönnum, sem hafa gert þessa djörfu ráðstöfun nauðsynlega, með því að gera alt að engu, sem þeir hafa haft handa á milli af sínu fje og annara? Er ekki skömmin og skaðinn nægur af því, sem þeir hafa látið grotna niður fyrir sinn andlega og menningarlega vanmátt? síldarmannastjettin hefir ekki getað notað sjer heimildina í síldarsamlagslögunum frá 1926 til að bjarga sjer sjálf. Það væru því hreinir og beinir fjárglæfrar að afhenda þessum mönnum, sem svo skemmilega hafa misnotað traust bankanna, þetta fyrirtæki. Háttv. 3. landsk. afsannaði ekki hið minsta af því, sem jeg hafði sagt. Hinsvegar eru síldarútvegsmenn við Eyjafjörð orðnir vonlausir um að bjarga sjer sjálfir. Og samt heimtar hv. 3. landsk., að verksmiðjunni sje kastað undir yfirráð þessara manna.
Ástæðan til, að jeg fylgi þessu frv., er sú, að með þessu er verið að gera vit úr þessum atvinnurekstri. Það er fullkominn misskilningur, að hægt sje að taka hóp af venjul. spekúlöntum og gera þá að samvinnumönnum. Það er kunnugt, hvernig samtök smákaupmanna erlendis hafa jafnan farið út um þúfur. Hver hefir svikið annan og reynt að skara eld að sinni köku. Ef samkepnismenn vilja hafa samvinnufjelagsskap með sjer, eiga þeir að stofna til hans sjálfir, eftir því sem þeir hafa kjark og dug til.