29.03.1928
Efri deild: 60. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3673 í B-deild Alþingistíðinda. (3392)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Jón Þorláksson:
Það er fullkominn misskilningur, að um það sje deilt, hvort þing eða stjórn eigi að hafa, æðstu völdin. Það, sem um er deilt, er. hvort þetta þing eigi að taka fullnaðarvald í þessu máli, eða hvort skjóta megi því undir úrskurð síðari þinga. Þetta er það, sem um er að ræða, og annað ekki.