03.04.1928
Neðri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3676 í B-deild Alþingistíðinda. (3400)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Frsm. minni hl. (Ólafur Thors):
Jeg mótmæli því sem algerlega ósönnu, að jeg hafi lagt það í vana minn að tefja þingmál. Og jeg legg það undir dóm heilbrigðrar skynsemi, hvort það muni seinka nokkuð störfum þingsins, þó að atkvgr. yrði frestað um þetta mál, þar sem á dagskrá er fjöldi annara mála, sem sjálfsagt vinst ekki tími til að afgreiða þau öll á þessum fundi.
Hæstv. forsrh. segir, að það mundi verða mjög bagalegt, ef ákvörðun yrði frestað. Jeg veit, hvað hann á við, en sje ekki, að það hafi við nein rök að styðjast. Hæstv. forsrh. ber fram þau rök gegn rjettmæti frestunarinnar, að tveir framsóknarmenn sjeu fjarverandi, en aðeins 1 íhaldsmaður. Þetta er óframbærileg ástæða, því að það ætla jeg, að svo rjettlátir menn finnist innan stjórnarflokksins, að þeir sjeu ekki fyrirfram ákveðnir í því að skella skolleyrunum við rökum. Og því betur mættu þeir finna til ábyrgðar sinnar, sem nú liggur væntanlega fyrir atkvgr. með nafnakalli um mál, er þeir áður hafa úrskurðað með nafnakalli. Hæstv. forsrh. þarf að færa betri ástæður en þessa fyrir sínu máli, ætli hann að sanna órjettmæti orða minna.