03.04.1928
Neðri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3678 í B-deild Alþingistíðinda. (3404)

92. mál, síldarbræðslustöðvar

Forseti (BSv):

Óskar hv. 2. þm. G.-K., að málið sje tekið út af dagskrá? (ÓTh: Nei, en jeg æski þess, að atkvgr. um það verði frestað). Hv. þm. óskar ekki eftir því, að málið sje tekið út af dagskrá. — Vegna ummæla hans skal jeg geta þess, að tveir hv. þdm. hafa fengið leyfi forseta til fjarvistar, og eru því löglega forfallaðir. — Þá skal jeg taka það fram, að gefnu tilefni, að jeg hefi aldrei sjálfur á þessu þingi látið ræða mál án þess að gengið væri til atkv. um það að umræðu lokinni. En það mun rjett vera, að hæstv. varaforseti Nd. hafi gert þetta, og að minni hyggju af þeirri ástæðu, að deildin var ekki ályktunarfær. Mjer skilst, að mál það, sem hjer er um að ræða, þurfi skjótrar afgreiðslu, en eftir atvikum ætla jeg, að úrslit málsins velti ekki á atkv. þeirra hv. þdm., sem fjarverandi eru. Mun jeg því ekki taka það af dagskrá, og liggur það nú fyrir deildinni til umr. og atkvgr.