03.04.1928
Neðri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3683 í B-deild Alþingistíðinda. (3408)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg er alveg samþykkur brtt. á þskj. 683 og get lýst yfir því af hálfu stjórnarinnar, að meðan jeg fer með þessi mál, mun slík verksmiðja aldrei verða afhent öðru fjelagi en því, sem starfar samkvæmt samvinnulögunum.
Eins og hv. þm. V.-Ísf. benti á, stendur svo á um þetta frv., að það hefir verið 4 sinnum til umræðu í hv. Ed. og 4 sinnum hjer. Ef því er breytt nú, verður það að fara til sameinaðs þings. En það þýðir ekki eingöngu töf, heldur líka, að 2/3 hluta atkvæða þarf til þess að það nái fram að ganga. Jeg vænti þess því, þar sem jeg þykist hafa látið í ljós það, sem hv. þm. V.-Ísf. óskaði, að hann fresti brtt. sinni. Á næsta þingi gefst væntanlega nægur tími til að athuga þetta mál og þá skal jeg heita hv. þm. fylgi mínu.
Jeg ætla ekkert að fara út í brtt. á þskj. 650. En af þeirri ástæðu, sem jeg hefi nefnt, að breytingar yrðu til þess að tefja málið og stofna því í hættu, vil jeg leggja til, að sú brtt. verði feld.