03.04.1928
Neðri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3691 í B-deild Alþingistíðinda. (3413)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Ásgeir Ásgeirsson:
Eftir ræðu hæstv. forsrh. skal jeg lýsa yfir því, að jeg tek aftur brtt. mína. En jeg tek það fram, að það er vegna orða hans, en ekki vegna röksemda háttv. þm. Dal. Hv. þm. sagði, að bændastjettin ætti að vera kjölfesta, þjóðfjelagsins. Hún verður það, ef hún kemur kjölfestu í síldarmálin. Hvergi annarsstaðar í okkar atvinnurekstri er því svo farið að tap á atvinnurekstrinum geti orðið þeim mun meira, sem meiri verður aflinn. Í frjálsri samkeppi er það venjulega svo, að ágóði og framleiðslumagn fylgjast að. En þar sem því er öfugt farið með þennan atvinnuveg, þá getur ekkert annað hjálpað en það, að skipuleggja hann. Og skipulagningin er sú kjölfesta, sem nauðsynleg er þessu máli. Finst hv. þm. Dal. síldin hafa verið sú kjölfesta fyrir þjóðfjelagið hingað til, að alt muni kollvarpast, ef salan er skipulögð? Jeg held varla, að hv. þm. treystist til að halda því fram. Nei, hv. þm. veit, að síldin hefir ekki verið nein kjölfesta, heldur þvert á móti hefir stórfeld áhætta fylgt henni alla tíð. Og einmitt þess vegna eru þau frv., er skipulagsbinda síldveiðina; komin fram. sem dæmi líks eðlis og þetta mætti nefna kaffiframleiðsluna í Brasilíu. Þar var ástandið þannig, að því meiri sem uppskeran varð, því meiru töpuðu framleiðendurnir á henni. Þetta lagaðist ekki fyr en ríkið hafði komið skipulagi á verslunina með hjálp stórlána, er það tók til þess. Þarna er nú ríki, sem ekki hefir notið mikils álits fyrir pólitískan þroska og hefir þó komið þeirri framleiðslu sinni, sem líkt er ástatt um og síldveiðina, í sæmilegt horf. Hjer þarf að gera hið sama til þess að tryggja það, að síldin missi ekki verðmæti sitt, þótt mikið veiðist. Hv. þm. fanst það stór áhætta fyrir ríkið að skifta sjer af síld. En afskiftaleysið varðveitir áhættu þjóðfjelagsins, sem er ekki óskylt ríkinu. Hvers vegna snýst hann þá móti því að skipuleggja þessi mál á samvinnugrundvelli? Jeg skil það ekki. Mjer finst, að hann ætti þvert á móti að leggjast á sömu sveif og við, sem líka viljum takmarka áhættu þjóðarbúsins af þessari framleiðslu. (MJ: ekki byggingarkostnaði!). Vilja háttv. þm. halda því fram, að hjer eigi ekki að vera neinar síldarverksmiðjur? (SE: Nei, alls ekki!). Þá er ekkert vit í þessu hjá hv. þm., því ef síldarverksmiðja borgar sig, þá gerir hún það eins fyrir því, þótt ríkissjóður láti byggja hana.
Um leið og jeg lýsi fylgi mínu við þetta frv., vil jeg taka það fram, að mjer þykir ekki nógu vel sjeð fyrir skipulagi rekstrarins í frv. En jeg hygg þó, að það komi ekki að sök, vegna þess að jeg tel víst, að koma muni til kasta næsta þings að ákveða skipulagið. Af sömu ástæðu tek jeg þá líka brtt. mína aftur nú. Það, sem nú er gert, hygg jeg, að hafi ekki þýðingu fyrir næsta sumar, nema þá til þess að leigja verksmiðju.
Að lokum vil jeg beina þeirri ósk til hæstv. stjórnar, að um leið og hún undirbýr byggingu á síldarverksmiðju, ef hún gerir það í ár, þá undirbúi hún líka frv. um rekstur og skipulag verksmiðjunnar og það samband, sem hagkvæmt teldist, að vera ætti milli hennar og síldareinkasölunnar. Þetta er svo stórt og þýðingarmikið atriði, að það ætti ekki að verða dregið undan löggjafarvaldinu.