03.04.1928
Neðri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3709 í B-deild Alþingistíðinda. (3422)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Ásgeir Ásgeirsson:
Jeg hefi tekið aftur brtt. mína. Ástæðan til þess er skýr; það er gert af ótta við andstæðinga málsins og þá, sem eru ótryggir, ef til sameinaðs Alþingis kæmi. Háttv. þm. Dal. hefir notað hvert tækifæri til að vinna málinu ógagn. Hann og hv. 2. þm. Skagf., sem tekið hefir upp till. mína, og fleiri hafa nú tekið að sjer hlutverk kjóans margumtalaða.
Allir, sem hjer hafa talað, hafa lýst yfir fylgi við till. mína, einn jafnaðarmaður, hv. 2. þm. Skagf., hv. 2. þm. G.-K. og hæstv. forsrh. Þegar um heimildartill. er að ræða, þá er nóg að fá yfirlýsingu stjórnarinnar um, að hún taki fult tillit til hennar, og því óþarft að fá hana borna undir atkvæði, ef stjórnin ein felst á hana, hvað þá heldur þegar allir flokkar styðja þann málstað. Jeg hefi því náð tilgangi mínum og get tekið till. mína aftur. Jeg tek hana aftur af „taktiskum“ ástæðum, án þess að hafa afsalað nokkru af stefnu minni í þessu efni.
Jeg veit, að hv. 2. þm. Skagf. sjer, að hann er ekki að bjarga neinu með því að taka tillöguna upp. Hæstv. fjmrh. sagði, að till. væri borin fram til að tefja fyrir málinu eða fella það. Jeg veit, að hann hefir þar ekki átt við mig, heldur það, að hún væri tekin upp í þessu skyni. Jeg er þó ekki viss um, að svo sje. Jeg held, að þetta sje einn þáttur þeirrar baráttu, sem háð er í blöðum og á mannfundum um það, hverjir sjeu mestir bændavinir og samvinnumenn. Það virðist stundum aðaldeiluefnið í ísl. stjórnmálum, og er ekki furða, þótt ekki hafi verið hægt að komast hjá þeirri baráttu hjer. Hv. 2. þm. Skagf. greip sílið úr munni mínum, sbr. líkinguna af kjóanum, vafalaust í þeim tilgangi, að fóðra hina pólitísku unga Íhaldsflokksins úti um landið, þótt jeg vonist til, að enginn verði feitur af hinni pólitísku fóðursíld. Till. er ekki tekin upp af nauðsyn málsins sjálfs, því að hún hefir þegar náð tilgangi sínum. Jeg vona, að hæstv. fjmrh. sjái nú, að mjer gekk ekki nema gott til með tillögu minni, og að hann viðurkenni, að jeg hafi ekki lagt nafn hennar Hátignar síldarinnar við hjegóma.