03.04.1928
Neðri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3711 í B-deild Alþingistíðinda. (3423)

92. mál, síldarbræðslustöðvar

Frsm. minni hl. (Ólafur Thors):

Hæstv. fjmrh. sagði, að þetta væri aðalmálið, er fyrir þinginu lægi, eða eitthvert hið stærsta. Jeg verð því að lýsa undrun minni yfir því að hafa ekki sjeð hann við umr. hjer í deildinni fyr en nú, að ein umr. fer fram um málið. Þá rennur fyrst upp sá hamingjudagur hjer í deildinni, að hæstv. fjmrh. berst fyrir stærsta máli þingsins.

Hæstv. fjmrh. sagði, að þeir, sem kæmu nú með brtt. við frv., væru að reyna að eyða því. Þessu var stefnt að mjer og flokksbróður hans, hv. þm. V.-Ísf. Hann fjekk þó örlítið brot af syndafyrirgefningu, af því að hann hafði tekið till. sína aftur, en þó sótti aftur í sama horfið og vöndurinn skall aftur, og hlýtur höggið að vera þeim mun þyngra á hv. þm. V.-Ísf. en mjer, sem því munar, að hann flytur brtt. sína nú í fyrsta skifti, en jeg flyt brtt. um, að málið fari í sama búning og hv. Ed. ætlaðist fyrst til, að það væri í og það fór í frá Nd. við 3. umr.

Hæstv. fjmrh. segir, að bræðslustöðina eigi að reisa sjávarútveginum til hagsbóta, og get jeg fallist á, að svo sje. Hjer er heldur ekki verið að deila um, hvort reisa skuli bræðslustöðina eða ekki, heldur hvernig hún verði rekin. Við 3. umr. lýsti jeg yfir því, að ef jeg gæti fengið yfirlýsingu þess ráðherra, sem þá var í deildinni, um, að verksmiðjan yrði starfrækt án áhættu fyrir ríkissjóð, þá myndi jeg greiða frv. atkv. mitt. — Hæstv. fjmrh. hristir höfuðið. Jeg skal skýra fyrir honum, hvað á milli ber. (Fjmrh. MK: Það er óþarfi). Jeg ætla að gera það samt. Nokkur hluti hv. þdm. vill láta starfrækja bræðslustöðina þannig, að hún kaupi síld í samkepni við aðrar síldarbræðslustöðvar, og af því muni hljótast hækkað verð. Jeg legg hinsvegar til, að útgerðarmenn megi leggja síld til vinslu inn í verksmiðjuna á þann hátt, að þeir fái þegar nokkurn hluta andvirðisins, en afganginn síðar, að frádregnum kostnaði. Ef þetta væri gert, hvíldi engin önnur áhætta á ríkissjóði en að stofna fyrirtækið. En annars gæti áhættan orðið mikil, eins og jeg mun sýna fram á.

Ein aðaláhættan er sú, að bræðslustöðinni verði ekki trygt hæfilegt síldarmagn með hæfilegu verði. Meðaltalsafli síðustu ára hefir verið 110 þús. mál í salt og bræðslu. Ef bygð verður bræðslustöð í samræmi við rannsókn hv. 3. landsk., á að reisa bræðslustöð, sem getur unnið úr 120 þús. málum, en þarf minst 60 þús. Jeg fullyrði, að þegar sjeu fyrir nægar bræðslustöðvar fyrir þá síld, sem að berst í venjulegum árum. Eina ástæðan fyrir því að reisa nýja bræðslustöð er sú, að bræðslustöðvar þær, sem fyrir eru, eru í höndum útlendra manna. Til að bæta úr því án áhættu fyrir ríkissjóð hefi jeg lagt til, að starfrækslu verði hagað á þann hátt, sem jeg hefi lýst. Um þetta hefir verið deilt, en jeg tel með öllu ómaklegt að ásaka okkur fyrir það, að við berum landbúnaðinn einan fyrir brjósti, en leggjumst á móti hagsmunum sjávarútvegsins. Jeg býst við, að jeg beri sjávarútveginn fyrir brjósti engu síður en hæstv. fjmrh. En jeg ber líka hag ríkissjóðs fyrir brjósti og jeg vil ekki, að hann beri áhættuna að nauðsynjalausu. Starfrækslunni verður að haga svo, að bræðslustöðinni sje trygt hæfilegt magn til vinslu. Það verður best trygt á þann hátt, að útgerðarmenn fái þar sannvirði fyrir alla síld, er þeir leggja inn, er hún hefir verið brædd. Þá væri það beint hagsmunaatriði fyrir þá, að stöðin fái hæfilegt magn á hverjum tíma, og því líklegt, að þeir skiftu við hana fremur en aðrar verksmiðjur. Við höfum leitt líkur að því, að á þennan hátt sje hag útgerðarmanna betur borgið en áður, en þó minni áhætta fyrir ríkissjóð.

Mjer fanst ástæða til að skýra þetta fyrir hæstv. fjmrh., svo að hann hefði okkur ekki fyrir þeirri röngu sök, að við vildum ekki hlynna að sjávarútveginum. Hæstv. ráðh. sagði, að undarlegt væri, að við vildum tefja málið. Kvaðst hann ekki vilja fullyrða, að þetta væri í eigin hagsmunaskyni gert, en mönnum gæti dottið það í hug. (Fjmrh. MK: Það var ekki hægt að komast vægar að orði). Hjer skaut upp höfðinu sú illkvitni, sem oft ber á í ræðum þessa hæstv. ráðh., enda þótt hún sje ekki honum í hug, eftir því sem honum er lýst. Ráðherrann er hjer að drótta því að mjer sem framkvæmdarstjóra í Kveldúlfi og hv. þm. Dal. sem bankastjóra í Íslandsbanka, að við tökum afstöðu til þessa máls með eigin hagsmuni fyrir augum, en bæði Kveldúlfur og Íslandsbanki reka bræðslustöð. Mjer þykir þessi illgirnislega aðdróttun leiðinleg hans vegna. Aðdróttun þessi er vitanlega ósönn og ósæmileg, en lýsir auk þess mestu vanþekkingu.

Um tvenskonar áhættu gæti sýnst vera að ræða fyrir þær stöðvar, sem fyrir eru hjer á landi, af stofnun nýrrar verksmiðju. Önnur er sú hætta, sem stafaði af verðlækkun, af því að framleiðslumagn ykist. En heimsmarkaðurinn er svo rúmur fyrir þessa vöru, að þessi áhætta ætti engin að vera. Enda er ekki víst, að framleiðsla ykist, þótt ný verksmiðja verði sett á stofn.

Hin áhættan gæti verið sú, að verksmiðjurnar yrðu að kaupa síldina dýrara verði heldur en nú. En það snertir að sáralitlu leyti þá verksmiðju, sem jeg er við riðinn, og eins hina, sem hv. þm. Dal. kann að hafa afskifti af fyrir hönd Íslandsbanka. Við bræðum að mestu síld af eigin skipum. Svo að jafnvel þótt hæstv. fjmrh. ætli okkur að vera þeir ódrengir og bjánar að flytja eigin hagsmuni okkar inn í Alþingi, þá getur hann ekki fært nein frambærileg rök fyrir því, að við höfum þarna hagsmuna að gæta. Jeg veit, að inni fyrir ætlar hæstv. ráðh. okkur það ekki, að við viljum rjúfa þingmannseið okkar af svo lágum hvötum, og jeg tel það mikinn ljóð á ráði svo mæts manns að bera fram jafnlubbalegar ásakanir.

Jeg þarf ekki að segja meira við hæstv. fjmrh., en ætla að svara nokkrum öðrum eilitlu.

Hæstv. forsrh. sagði, að það væri undarlegt, er jeg kvað það mundu ráða atkvæði mínu í þessu máli, hverjar yfirlýsingar hann gæfi um það, hvernig hann hugsaði sjer að haga rekstri bræðslustöðvarinnar. Hann sagðist vera dauðlegur maður og geta hæglega hrokkið upp af á morgun. Jeg vona, að það komi nú ekki fyrir, — nema pólitískan dauðdaga má hæstv. forsrh. bíða fyrir mjer, og það strax í dag. Að öðru leyti óska jeg honum sem lengstra lífdaga. En þótt svo ætti nú að fara, að hann dæi nú á næstunni, vil jeg minna hann á, að yfirlýsingar hans sem stjórnarformanns eru tvímælalaust bindandi, nema því aðeins, að hæstv. stjórn hrykki öll upp af þ. e. a. s. hröklaðist frá völdum, (Fjmrh. MK: Það er nú ekki hætt við því í bráðina). Jeg er nú svo bjartsýnn, að jeg vona, að þessari plágu ljetti bráðlega af þjóðinni, hvað sem hæstv. fjmrh. segir. — En ef svo hamingjusamlega tekst til, að við losnum við þessa stjórn, þá eru allar líkur til, að það verði Íhaldsflokkurinn, sem við stjórnartaumunum tekur. Um stefnu þess flokks í þeim málum, er hjer um ræðir, veit jeg vissu mína. Fyrir því er mjer alveg nóg að fá yfirlýsingu hæstv. forsrh. til að vita, hvort mjer er óhætt að greiða þessu atkvæði. — Annars verð jeg að benda hæstv. forsrh. á það, að ef ekkert er að marka yfirlýsingu hans um þetta efni, þá er ekki heldur að marka þá yfirlýsingu, er hann gaf út af brtt. hv. þm. V.-Ísf. Eftir hans eigin röksemdaleiðslu er það eintóm markleysa, sem hann sagði um brtt. þessa merka flokksbróður síns.

Hv. 2. þm. Reykv. var að víta mig fyrir uppivöðslusemi í deildinni. Hann er altaf jafnuppfullur af því, að það sjeu „við meirihlutamenn“, eins og hann segir, sem eigi að ráða. En þótt þeir eigi að ráða, vil jeg benda háttv. þm. á það, að af því leiðir engan veginn, að minni hl. megi ekki einu sinni tala. — Hv. þm. kvað mig hafa verið með uppivöðslu og „frekju“ gagnvart hæstv. forseta. En meðan hann sjer ekki ástæðu til að víta mig, ætti hv. 2. þm. Reykv. ekki að vera þar með neinn slettirekuskap. Það er hann sjálfur, sem sýnir uppivöðslusemi gagnvart hæstv. forseta með því að ætla að taka til sín vald hans til að gæta þingskapa.

Einu rökin, sem hæstv. forsrh. færði fyrir því, að hraða þyrfti málinu, voru þau, að hingað væri væntanlegur í dag þýski verksmiðjueigandinn dr. Paul, sem á bræðslustöð á Siglufirði. Hann mun fáanlegur til að leigja bræðslustöð sína, og því taldi hæstv. ráðherra nauðsynlegt að ákveða þegar í stað, hvað gera ætti. Nú hefir hv. 2. þm. Reykv. lýst sig andstæðan mjer og hv. þm. V.-Ísf. um það, hvernig á að reka síldarverksmiðjuna. Ekki hefir tekist að fá neitt upp úr hæstv. forsrh. um það, hvaða leið hann hugsar sjer að velja. En jeg vil minna hv. deild á það, að nú eru alsíðustu forvöð að ræða það, hvernig á að haga starfrækslu fyrirtækisins. Er því ekki seinna vænna fyrir hv. þd. að láta sitt álit í ljós, ef hún óskar að hafa á það einhver áhrif.

Hjer hafa aðallega verið færð fram þau rök gegn brtt. minni, að með henni væri málinu stefnt í háska, því að ekki væri víst, að það fengi nóg fylgi til að komast fram í Sþ. Jeg hefi nú fært líkur fyrir hinu gagnstæða, og skal ekki farið frekar út í það. En hjer er um það að ræða, hvort deildin á að víkja frá þeim dómi, sem tvisvar hefir verið kveðinn upp. Það á að ákveða, hvort ráðh, og flokkur þeirra eða hinir ráðandi herrar Alþingis, hv. jafnaðarmenn, eiga að skera úr um sölu bræðslustöðvanna, ef til kemur.