03.04.1928
Neðri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3735 í B-deild Alþingistíðinda. (3440)

92. mál, síldarbræðslustöðvar

Frsm. minni hl. (Ólafur Thors):

Jeg vil leyfa mjer að fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann taki þetta mál út af dagskrá nú og fresti atkvgr. Færi jeg þessi rök fyrir beiðni minni: Hv. deild hefir þegar áður felt dóm um stefnu þá, sem felst í brtt. mínum við þetta frv., en ef atkvgr. færi nú fram um málið, þá hefi jeg ástæðu til að ætla, að úrskurður deildarinnar verði annar. Þegar deildin feldi hinn fyrri dóm sinn, þá guldu 14 þm. honum jáyrði, en 10 andmæltu. Af þessum 14 mönnum eru nú 3 fjarverandi með leyfi hæstv. forseta. En af þeim 4 þm., sem voru fjarverandi við hina fyrri atkvgr., mun einn verða með mínum till., en 3 á móti. Og yrði því niðurstaðan sú, ef allir hv. þdm. væru viðstaddir og enginn hefði breytt um skoðun, sem jeg hefi ekki ástæðu til að ætla, að brtt. mínar mundu verða samþyktar með 15 atkv. gegn 13, en líkindi eru til, að þær falli með 13 atkv. gegn 12, ef þær verða bornar undir atkvæði nú.

Þar sem hæstv. forseti hefir oft áður frestað atkvgr. vegna þess að þm. hafa verið fjarstaddir í leyfisleysi, þá virðist mjer því meiri ástæða til þess að fresta atkvgr. nú, þar sem þeir eru fjarstaddir með leyfi hæstv. forseta. Umræðum er nú lokið, og getur það því ekki skift neinu um tafir á störfum þingsins, þótt þessi tilmæli mín verði tekin til greina. Jeg vænti þess, að full sanngirni felist í beiðni minni, og geti því hæstv. forseti orðið við henni.