03.04.1928
Neðri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3738 í B-deild Alþingistíðinda. (3447)

92. mál, síldarbræðslustöðvar

Frsm. minni hl. (Ólafur Thors):

Svo gæti staðið á, að jeg kysi heldur að eiga málmitt undir gervöllum þingheimi en forseta. En til þess hæstv. forseta, sem nú situr, ber jeg það traust, að jeg tel hann einfæran að úrskurða um beiðni mína. Og hvernig sem sá úrskurður fellur, mun jeg fullkomlega sætta mig við hann. Jeg ætla heldur ekki að fara að rífast um gáfur okkar hv. 2. þm. Árn. Jeg tala sjaldan um sjálfan mig, og þá er þetta lítið að rífast um.