28.02.1928
Neðri deild: 34. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3810 í B-deild Alþingistíðinda. (3497)

116. mál, tekju- og eignarskattur

Magnús Jónsson:

Eftir því að dæma, hve miklu hefir rignt niður af tekjuaukafrv., skyldu menn halda, að verið væri að stofna til stórkostlegs tekjuhalla á fjárl. Það lítur út eins og einhver hætta vofi yfir, svo að grípa þurfi til örþrifaráða til að afstýra henni. Fjárlagafrv. var þó með ofurlitlum tekjuafgangi eins og það var lagt fyrir þingið af hæstv. stj., og nú hefir fjvn. skilað áliti sínu og brtt., og er útkoman sú, að áætlaður tekjuafgangur hefir heldur aukist en hitt. Jeg skal nú ekki fara lengra út í þetta, en tek þetta aðeins fram sem inngang að umr. um þetta mál, sem hjer liggur fyrir.

Jeg held nú, að ef nauðsyn er á því að afla meiri tekna fyrir ríkissjóðinn, þá sje tæplega hægt að bera öllu óheppilegar niður en hjer er gert með þessu frv. Það er með tekjuskattinn eins og fleira hjá hv. jafnaðarmönnum, að þeir eru miklir í hugmyndum og kenningum, en minni í veruleikanum. Það lítur fagurlega út, að það sje rjettast og sanngjarnast, að menn greiði gjöld sín til opinberra þarfa í rjettu hlutfalli við þær tekjur, sem þeir hafa.

Það hefir nú verið leiðrjett af hv. 2. þm. G.-K., að tekjuskattur væri greiddur aðeins af þeim tekjum, sem menn hafa afgangs nauðsynjum sínum. Því fer mjög fjarri, að það sje rjett. Sömuleiðis er ákaflega fjarri því, að tekjuskatturinn komi rjett niður. Til þess að það verði, þarf að endurbæta stórkostlega grundvöllinn undir þeim lögum, sjálft tekjuframtalið.

Eins og nú er, verða þeir, sem lifa á handafla sínum, langverst úti. Jeg skal benda á það sem dæmi til athugunar fyrir hv. þdm., að það kom fyrir einu sinni, að maður, sem vann í búð hjer í bænum og vann fyrir frekar litlu kaupi, greiddi hærri tekjuskatt en heill hreppur einn hjer austanfjals. Það má vera, að bændur í þessum hreppi hafi yfirleitt verið illa stæðir, en jeg hygg þó, að þeir hafi allir til samans verið færir um að greiða drjúgum hærri tekjuskatt en þessi eini búðarmaður. Jeg ætla ekki að skýra þetta frá mínu sjónarmiði, en frá sjónarmiði hv. flm. ætti þetta að vera ákaflega sterk sönnun þess, að tekjuskatturinn komi ekki rjett niður. Annars er það svo, ef út í þetta mál er farið, að á margt er að líta. Minst hefir verið á togarafjelög hjer í bænum og þá staðreynd, að þau greiða sum árin engan tekjuskatt. Í því sambandi er þess að geta, að þessi umræddu fjelög bera venjulega mjög há útsvör og þau dragast frá. Jeg veit nú reyndar, að hv. flm. muni halda því fram, að þau greiði heldur ekki nógu hátt útsvar, og er ekki til neins að þræta um slíkt. Ef nú ætti að hækka tekjuskattinn mikið, þyrfti að breyta alveg grundvellinum undir honum. En það hefir ekki enn tekist að finna þá aðferð, sem einhlít sje í því efni. Lögin um tekjuskatt hafa verið til meðferðar á þingi hvað eftir annað, og jeg held, að yfirleitt hafi frekar þótt þörf á að lækka hann heldur en hitt.

Jeg skildi ekki vel, hvað hv. flm. átti við, þegar hann sagði, að tekjuskatturinn hækkaði eftir því, sem menn væru fátækari. (HjV: Hlutfallslega). Það er nú svo, að það er ómögulegt að komast hjá því, að hinir fátækari eiga altaf erfiðara með allar greiðslur, og þar á meðal að greiða skatta, en hinir, sem efnaðri eru. Tollar af munaðarvöru eru líka að nokkru leyti tekjuskattur, því að það fer eftir tekjum manna, hvað þeir leyfa sjer mikla eyðslu á óþarfavarningi. Verðtollurinn er á sama hátt að nokkru leyti tekjuskattur. (HjV: Er tekjuskattur þá góður?). Þar á er sá munur, að verðtollurinn er tekjuskattur, sem menn greiða að miklu leyti eftir því, hvað miklu þeir vilja eyða. Það er áreiðanlegt, eins og hv. þm. Vestm. benti á, að hjer er ekki meiri þörf á neinu en því, að fá uppsparað fje hjá einstaklingum og atvinnufyrirtaekjum, og við það þurfa skattarnir að miðast.

Jeg vil svo að lokum endurtaka það, sem jeg sagði í upphafi, að jeg sje ekki þörfina á þessum tekjuauka, og mjer finst hjer auk þess mjög óheppilega borið niður og greiði því atkv. á móti því, að þetta mál gangi lengra.