20.01.1928
Neðri deild: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í B-deild Alþingistíðinda. (35)

Kosning fastanefnda

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil aðeins gera þá athugasemd, að það er af ókunnugleika mælt hjá hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh), er hann segir, að þetta muni ekki tefja störf fjárveitinganefndarinnar. Undanfarandi þing að minsta kosti hefir það verið regla þeirrar nefndar að hefja störf þegar eftir kosningu.

Jeg vildi spyrja hv. formann kjörbrjefanefndarinnar, hvort nokkur líkindi sjeu til, að hún muni hafa lokið störfum sínum á mánudag. (SvÞ: Það eru litlar líkur til þess).