27.03.1928
Neðri deild: 58. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3873 í B-deild Alþingistíðinda. (3521)

116. mál, tekju- og eignarskattur

Einar Jónsson:

* Jeg hefi svo oft orðið var við það, þegar um lík mál og þetta hefir verið að ræða hjer á Alþingi, að bændum hafi verið borin á brýn þröngsýni. Hvað snertir mál það, sem hjer er til umræðu, að hækka tekju- og eignarskatt á embættismönnum um 25% frá því, sem hann er nú, vil jeg taka það fram, að jeg get alls ekki fylgt því. Þessi skattur, eins og hann er nú, er þessum mönnum mjög erfiður, og því get jeg ekki fallist á að fara að íþyngja þeim ennþá meir með því að fara að hækka hann að miklum mun.

Sömuleiðis finst mjer engin aðkallandi nauðsyn vegna tekjuaukaþarfar ríkissjóðs að fara að samþykkja þessa hækkun nú, og það því síður, þegar fram er komin í þinginu till. um skipun milliþinganefndar til þess að athuga tolla- og skattamálin yfirleitt. Mjer hefði því fundist, að þessi breyting á skattalögunum hefði mátt bíða, þar til nefnd þessi hefði athugað málin. Mál þetta hefir verið sótt og varið hjer í dag frá báðum hliðum, en einna best virtist mjer það koma fram í ræðu hv. þm. Dal. (SE), hversu feiknamiklum órjetti embættismenn landsins væru beittir með skatthækkun þessari. Vil jeg því ekki, enda þótt jeg sje efnalaus bóndi ofan úr sveit, láta bera mjer það á brýn, að jeg sýni skilningsleysi í þessu máli, sem bersýnilega er stefnt að ákveðinni stjett manna í landinu, sem þó eins og margar aðrar stjettir á við erfið kjör að búa. Mun jeg því greiða atkvæði á móti frumvarpinu. Það hefir að vísu komið fram brtt. um það, að undanþiggja frá skatthækkuninni tekjur undir 4000 kr., og má því segja, að þeir, sem minstar tekjur hafa, sjeu fyrir utan þetta mál, eins og t. d. bændur yfirleitt, en þar sem skattur- inn fer altaf stighækkandi, verður hækkunin nær óbærileg fyrir þá, sem eru fyrir ofan þetta 4 þús. kr. takmark, og á það finst mjer beri að líta.

Einn hv. þm., sem hjer talaði í dag, taldi þetta miklu sanngjarnari leið en að hafa áfram 25 % gengisviðaukann á kaffi- og sykurtollinum, en þar er jeg á gagnstæðri skoðun. Jeg hefði talið miklu rjettara og sanngjarnara að hafa hann áfram óbreyttan heldur en að slengja þessari skatthækkun á. Þessi hv. þm. reyndi að villa mönnum sýn, eins og „Tíminn“ hefir gert í mörg ár, með því að halda því fram, að þessi 25% gengisviðauki orsakaði 1/4 hækkun á verði varanna. En hjer er vitanlega um alt annað að ræða; það er aðeins viðbót á tolli þeim, sem á vörunum hvílir. Þetta skilja sveitakarlarnir, því að sem betur fer lesa þeir fleiri blöð en „Tímann“.

Mjer þótti gaman að, þegar háttv. þm. voru að spreyta sig með fyndni Gröndals, og hygg jeg, að hæstv. forsrh. hafi farið þar rjettast með, að Gröndal hafi sagt, „að þá hafi öllu verið stolið frá þeim, sem ekkert áttu“. Og mjer finst einmitt, ef við förum að viðhafa þjösnaskap í þessu máli, þá stelum við frá þeim, sem ekkert eiga.

Að endingu vil jeg taka það fram, að jeg vildi helst, að þeir menn, sem beita sjer fyrir verkföllum og hverskonar pólitískum þrælabrögðum, kæmu sem minst nálægt tollmálum og skattamálum yfirleitt, því að þær till., sem frá þeim koma í þeim efnum sem öðrum, munu síst verða þjóðinni til hagsbóta.

Jeg þykist nú hafa sýnt, að ekki sje með fullum rjetti hægt að bera öllum bændum á brýn þröngsýni í þessum málum.

(*Ræðuhandr. óyfirlesið.)