22.02.1928
Neðri deild: 29. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3930 í B-deild Alþingistíðinda. (3558)
77. mál, einkasala á síld
Sigurjón Á. Ólafsson:
Þetta mál hefir þegar gengið gegnum hv. Ed., allar þrjár umr., og er því óþarfi að láta því fylgja langan formála hjer.
Jeg geri ráð fyrir, að svo stóru máli sem þessu verði vísað til nefndar, og vil jeg þá mælast til þess, að því verði vísað til sjútvn.