26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4010 í B-deild Alþingistíðinda. (3577)
77. mál, einkasala á síld
Magnús Jónsson:
Þegar jeg heyrði ræðu hv. þm. Dal., get jeg sagt að nokkru leyti, að mjer varð ekki um sel, því að hann var mjer svo sammála um þetta mál, að jeg gæti í raun og veru gert hans orð að mínum. Jeg spurði hann að því á eftir, hvort hann hefði ekki verið inni meðan jeg sagði nokkur orð í gær, af því að hann dró fram nákvæmlega sömu atriði og jeg í gær, en ræddi þau aðeins víðtækar, en hann kvaðst ekki hafa verið við. Jeg dró þá fram þann galla á einkasölunni, að bæði eftir því fyrirkomulagi, sem samþ. var 1926, og eins eftir frv., sem fyrir liggur, á hún að starfa án þess að hafa nokkru fje yfir að ráða, og hvaða halla allir smærri framleiðendur mundu bíða við að starfa undir því fyrirkomulagi. Jeg sýndi einnig fram á magnleysi einkasölunnar til þess að hafa hemil á síldarverðinu á meðan kostur væri á að fiska svo mikla síld utan landhelginnar, að nálega má fullnægja besta markaðinum, sem sje sænska markaðinum. Jeg dró fram, hve hættulegt væri svo að segja að egna þá menn, sem kaupa vöruna af okkur, með óþarflega hranalegri aðferð, — egna þá til þess að drepa niður þessa viðleitni, sem fólgin er í einkasölu.
Þessi þrjú eða fjögur atriði dró jeg fram í gær, og hv. þm. Dal. hefir einmitt lagt aðaláhersluna á þau. Þetta, að tveir menn draga fram öll þessi sömu rök án þess að vita hvor af öðrum, það finst mjer benda á það. hvað þau liggja í raun og veru ákaflega nærri og ljóst fyrir, ef menn aðeins eru inni á þessum hugsanagangi með frjálsri verslun, en móti einkasölu, — ef menn ekki stara á eitthvert fyrirkomulag, sem þeir einu sinni vilja hafa, án þess að gera málið algerlega frjálst í huga sjer.
Hv. frsm. meiri hl. gaf mjer ákaflega einkennileg svör, sem mjer fanst mótast dálítið af þeirri afareinkennilegu framkomu hans flokks, að vilja helst sem minst um málið tala. Meðal annars svaraði hann þessu atriði, sem jeg dró fram í gær, að hann hafi haldið, að jeg talaði mestmegnis í gamni; hann talaði sjálfur mest í gamni, og meira var ekki að hafa hjá honum. Ekki mintist hann á það einu orði í svarræðunni, hvernig síldareinkasalan ætti að fara að ná tökum á síldarverðinu á meðan hægt er að fiska svo mikið utan landhelginnar sem raun er á. Þegar litið er til þess, að á seinasta ári er fiskað utan landhelgi — eftir því sem skýrslur herma — svona hjer um bil eins mikið og sænski markaðurinn getur tekið við, þá sjáum við, hvaða dæmalaus fjarstæða það er að halda, að með einkasölu megi sitja að þessum markaði.
Nú má að vísu segja, að ekki sje að miða við aflann síðastl. sumar utan landhelginnar, — sem er álitið, að sje um 190 þús. tunnur —, sökum þess, hve síldveiðin var sjerstaklega góð. En góðæri geta altaf komið. Svo má athuga það, að ganga má að því sem sjálfsögðu, að síldareinkasalan egni menn til þess að viðhafa þessa aðferð meira en hingað til. Nú um árabil hafa Svíar horfið frá því að fiska síld sjálfir, en tekið það ráð að hafa hjer meðráðamenn, sem jeg vil kalla til hægðarauka „leppa“. Ef þeir eru hraktir úr því vígi, hvað er þá sennilegra en að þeir taki upp hina aðferðina aftur?
Það má gera ráð fyrir að þessi mikla síldveiði utan landhelgi í sumar stafi að nokkru leyti af góðum skilyrðum fyrir veiðinni. En það má líka búast við, að venjuleg veiðiskilyrði verði meira en bætt upp með aukinni áherslu á þessa aðferð. Jeg tók það fram við fyrri hluta þessarar umræðu, að jeg tryði naumast, að hægt væri að verka vel síld utan landhelgi; en mjer er sagt, að þetta lánist furðanlega. Og sjerstaklega verður að gæta þess, að ef eindreginn vilji manna stendur bak við til að, eyðileggja þetta fyrirtæki landsmanna, sem er tilraun til að kúga neytendur síldar, þá reyna þeir hvað hægt er að láta koma krók á móti bragði, enda þótt þeirra vara sje ekki alveg eins góð. Við verðum að gæta að því, að með þessu er lagt út í nokkurskonar viðskiftastríð, og því verðum við að vera við því búnir, að sá, sem á móti herjar, leggi mikið í sölurnar. Og það er ver farið en heima setið, ef síldareinkasalan yrði aðallega til þess, að aukin yrði veiði utan landhelgi og þessir hötuðu „leppar“ reknir úr landi, svo að síldin kemur aldrei á land, engin vinna flýtur af henni og engin gjöld til bæjar- eða ríkissjóðs. Menn sitja þá með sárt ennið og nota sína síld til þess að senda hana á vafasaman markað, eins og Rússasíldina í sumar. Jeg er ekki trúaður á það, að við getum bægt Norðmönnum algerlega burt frá því að veiða síld, eins og menn láta í veðri vaka, að megi með þessum lögum. Þeir hafa á okkur tangarhald með kjöttollssamningunum. Jeg saknaði þess í ræðu hv. frsm. meiri hl., að hann kæmi inn á þetta atriði ræðu minnar, en get þó afsakað það, þar sem engin rök eru til á móti þessu. Ef Svíar þykjast einhverri hörku beittir, og sjerstaklega ef stjórn einkasölunnar er pólitísk og öðrum álíka kostum gædd, þá öfunda jeg ekki framkvæmdarstjórana, þegar þeir eiga að fara að selja einkasölusíldina til Svíþjóðar. Jeg þykist vita, að móttökurnar verði ekki sem blíðastar, en gert verði það, sem hægt er, til þess að sú einkasala blómgist ekki.
Jeg þykist vita, að tilgangur einkasölunnar sje meðal annars sá, að leita nýs markaðar, og mundi þá einkasalan sennilega hafa talsvert mikið af sinni síld til þess að hringla með út um hvippinn og hvappinn; en það er ósjeð, hversu ánægðir þeir menn eru undir þeim kjörum, sem kosta miklu til að veiða síldina.
Næsta atriði, sem jeg dró fram, en hv. frsm. meiri hl. kom ekki neitt að, var sú fyrirsjáanlega fjárþröng, sem mundi verða undir einkasölufyrirkomulaginu. En hann var að tala um það, að jeg mælti „leppunum“ bót, vildi ekki styggja þá o. s. frv. Mjer skildist nú á hv. 2. þm. Eyf., sem er allra manna kunnugastur fyrir norðan, að þessir svokölluðu „leppar“ væru ekki til; þetta væru ósannindi, sem verið væri að fleipra um einstaka menn. En þá veit jeg ekki, til hvers öll þessi umbrot eru, því að bæði utan þings og innan hafa ekki heyrst önnur meiri rök fyrir öllum þessum samtökum, bæði síldarframleiðenda og svo einkasölunni, sem hjer er talað um, heldur en þau, að hafa af höndum sjer þessa skaðlegu menn. Og jeg vil segja, að það hefir enginn kveðið þetta síldareinkasölufrv. eins rækilega niður eins og hv. 2. þm. Eyf., ef það er rjett, sem hann sagði.
Jeg býst nú við, að umhyggjan fyrir þessum svokölluðu „leppum“ sje nokkurnveginn jöfn hjá okkur hv. frsm. meiri hl., nefnilega ekki nein; en umhyggjan fyrir smærri síldarframleiðendum er kannske ekki alveg jöfn. Jeg spyr einu sinni enn: Hver verður kaupandi að síldinni undir einkasölufyrirkomulaginu, þegar þeir eru burt reknir, sem helst hafa keypt? Hvaðan á að fá fje til að kaupa fyrir? Jeg veit ekki, hvort það mundi þykja sjerlega heillavænlegt, að bankarnir færu að lána mönnum til þess að „spekúlera“ í slíkum síldarkaupum; jeg held það væri óheppilegt að veita fje bankanna í það. Jeg held, að aðalgallinn á þessari einkasölu verði sá, að hún hafi ekki nóg fje til þess að starfa með. En á hinn bóginn veit jeg ekki, hvaðan hún ætti að fá fje. Jeg þykist alveg vita það, — og jeg hygg hv. þm. Dal. hafi tekið það fram —, að næsta skrefið verður það að heimta fje úr ríkissjóði til einkasölunnar, svo að hún geti útvegað mönnum tunnur og salt; það verður heimtað fje til þess að einkasalan geti gerst síldarspekúlant, og mun sannast, að erfitt verður að spyrna á móti broddunum.
Jeg skal játa, að það var í hálfgerðu gamni sagt hjá mjer, þegar jeg talaði um, að svo gæti farið, að síldareinkasalan yrði að fá þar fje, sem fje hefði fengist hingað til, nefnilega hjá þeim, sem síðar ætla að kaupa síldina í Svíþjóð. Jeg skal ekki segja, að þeir ætli sjer að græða á einkasölunni, en vildu kannske leggja henni til tunnur eða salt eða jafnvel peninga. Jeg segi þá, að við værum búnir að koma okkur upp einum stórum ríkis-„lepp“, en reka burt alla smáleppana.
Að þessu frágengnu er ekki um annað að tala en að láta ríkið leggja fram fje í þessu skyni, 1–2 miljónir, og jeg er í engum vafa um, að það verður líka heimtað. Það var náttúrlega gott og blessað, sem hv. þm. Borgf. sagði, að þetta felist ekki í frv. Það er algerlega satt. En það er heldur ekki farið fram á, að nokkur trygging sje fyrir því, að smærri framleiðendur geti haft nokkurt gagn af síldinni með þessu móti. Og það kemur áreiðanlega krafa um það, að þeir geti hjer eftir eins og hingað til notað sjer síldina, þó að þeir hafi ekki meiri peninga en svo, að þeir geti gert út með reknetum eða snurpinótum, en hafi ekki getu til þess að hafa tunnur og salt, bryggjur og annað, sem þarf til þess að geta verkað síldina í hendur einkasölunnar. Brtt., sem liggur fyrir nú, gefur hálfpartinn undir fótinn, að einkasalan eigi að vera mönnum hjálpleg að ná í tunnur og salt; en þeir einir geta notað sjer það, sem hafa einhverja aðstöðu til þess.
Jeg skal ekki orðlengja mikið meira um þetta mál. En jeg vildi með þessum orðum gefa bendingar um, að þó að þetta frv. fari fram á það, sem er einfalt og óbrotið, þá mundi það enda í allstóru fyrirtæki. Það mun sýna sig fljótt, að einkasalan verður að þenja sig út á báða bóga, ef hún á að verða að nokkru liði. Menn mundu fljótt finna, að erfitt er að skifta við stórkaupmenn í Svíþjóð, og yrði því að komast nær neytendum. Og á hinn bóginn verður einkasalan að komast nær sjálfum framleiðendunum, einkum þeim smærri. Henni helst ekki lengi uppi að vera sá blóðlausi milliliður, sem frv. gerir ráð fyrir. En til þessa alls þarf afarmikið fje, og það verður eitthvert áhyggjuefni þeim, sem eiga að hirða um einkasöluna eftir að hún er þannig búin að færa út kvíarnar.
Hv. samþingismaður minn, 4. þm. Reykv., sagði, að allir fyndu þörfina á að skipuleggja síldarsöluna. Jeg held nú, að þetta sje ofmælt hjá hv. þm. Hitt er rjett, að allir hafa fundið, að talsvert ólag hefir verið á framkvæmd þessara mála. Og frá því stafa einmitt öll þessi umbrot. En þar með er ekki sagt, að hjer sje fundin úrlausnin, sem lækni þetta. Það er líkt farið með þetta eins og sjúkling, sem eftir að hafa reynt eitt og annað leitar til skottulæknis, og það eins fyrir það, þótt honum sje ekki nein batavon. — Að menn vilja reyna þessa leið, stafar af því, að þessi atvinnuvegur er erfitt viðfangsefni. Þess eru ekki fá dæmi, að þeir menn, sem við þetta hafa fengist, hafi á tímabili, fyr eða síðar, tekið þessa einokunarsótt. Það eru þeir menn, sem ekki hafa athugað þetta mál nógu rækilega niður í kjölinn. Jeg held, að síðan jeg kom fyrst á þing, hafi ávalt legið slík frv. fyrir þinginu. Og mig minnir það hálfvegis — vil þó ekki fullyrða það —, að ein slík lög um einkasölu á síld sjeu til frá 1921. Hvernig væri nú, ef menn vildu rífa þennan ræfil upp úr svelli og reyna að notast við hann? Þá þyrfti ekki að vera að ræða um þetta frv. Það getur verið, að það þyki þægilegt nú að samþykkja þetta, og að til þess sje nóg bolmagn. En jeg er hræddur um, að þar sje ekki sopið kálið, þótt í ausuna sje komið. Jeg er hræddur um, að þetta mál verði hverri stjórn óþrotleg náma allskonar örðugleika og að þingið fái þar óþrotlegt umtalsefni á hverju ári, uns flestir verða svo leiðir á því, að þeir óska því norður og niður. Hjer þykjast menn ætla að „stemma á að ósi“. En jeg er hræddur um, að þeir hafi ekki jafngóðan stein og gamli Þór hafði, nje leikni hans til að hitta það, er hann hæfði til. Og þó stundum slettist á, þar sem siglt er undir merkjum hinnar frjálsu samkepni, þá er það þó spá mín, að margir munu, áður en langt um líður, óska þess af heilum huga, að þeir hefðu aldrei farið af þeirri snekkju út á einokunargaleiðuna.
Um þetta efni er nú altaf verið að setja lög. Ein voru að mig minnir sett 1921, önnur 1926. Hvorug hafa komist til framkvæmda. Nú verða þau þriðju sennilega sett 1928. Máske koma þau til framkvæmda, og væri það ef til vill heppilegt, svo menn fengju einu sinni að reka sig á sjálfan veruleikann. Hv. þm. Borgf. vildi kalla þetta þing síldarþing. Jeg er ekki viss um, að það sje rjettmæli, því flest þing hafa síldina að einhverju leyti til meðferðar. Það mætti fremur kalla það einkasöluþingið mikla. Hjer úir og grúir af einkasölufrv., og eru víst tvö eða fleiri á dagskrá í dag.
Það væri vonandi, að sá tilgangur náist með þessu frv. að útrýma þessum ógurlegu leppum, ef þeir eru til. En jeg sje bara ekki, hvernig ætti að útiloka það með þessu frv. Jeg veit ekki, hvað það er, sem hamlað gæti Svíum frá að hafa hjer sína umboðsmenn eftir sem áður.
Jeg skal svo ekki fjölyrða meira um þetta. Jeg get tekið undir það með hv. þm. Dal., að jeg hefi eins og hann sagt þetta til að friða samviskuna, fremur en jeg búist við árangri af því, þar sem málið mun nú þegar vera ráðið.