02.04.1928
Neðri deild: 63. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4073 í B-deild Alþingistíðinda. (3597)

77. mál, einkasala á síld

Frsm. minni hl. (Ólafur Thors):

Síðan jeg talaði, hafa ekki komið fram veruleg andmæli gegn minni fyrri ræðu, önnur en þau, sem meðnefndarmaður minn, hv. þm. Vestm., svaraði í sinni löngu ræðu.

Jeg vil þó aðallega víkja nokkrum orðum að hv. þm. Borgf., sem flutti hjer allítarlega ræðu um málið. Þó mun jeg leiða hjá mjer að minnast á það, sem hv. þm. drap á, nema nokkur fá höfuðatriði, sem okkur ber á milli.

Hv. þm. lagðist á móti brtt. minni hl. sjútvn., þeim, er að því hnigu að nema úr frv. heimild framkvæmdarstjóra einkasölunnar til að banna söltun síldar á ákveðnum degi á meðan veiði stendur yfir. Hv. þm. sagði slíkt bann vera lögfest árið 1926, og þá talið vera höfuðkostur þeirra laga. Jeg mótmæli því eindregið, að þetta hafi þá verið nokkurt aðalatriði, og fyrir hönd flutningsmanna frv. get jeg fullvissað hv. þm. um, að það var frekar talið sem neyðarúrræði heldur en sem höfuðkostur frv.

Hv. þm. gat um það, sem og er rjett, að sá er munur á því frv., sem nú liggur fyrir, og lögunum frá 1926, að samkvæmt lögunum eru ekki gerðar neinar ráðstafanir til þess, að það yrði fyrirfram trygt, að söltun keyrði ekki úr hófi, en aftur á móti eru eftir frv., sem hjer liggur fyrir, komnar fram víðtækar ráðstafanir til að gera það, en einmitt þess vegna skil jeg ekki, hver nauður getur rekið til hins, að heimila framkvæmdarstjórninni að banna söltun frá ákveðnum degi á miðri vertíð. Framkvæmdarstjórninni er í sjálfsvald sett, hvenær söltun byrjar, en í hinu liggur höfuðtryggingin, að framkvæmdarstjórninni er heimilt að skamta úr hnefa fyrirfram, hve mikið megi salta á tímabilinu. Spurningin er þá, hvort nokkuð geti komið fyrir á miðri vertíð, sem valdi því, að nauðsynlegt geti verið að selja framkvæmdarstjórninni vald í hendur til að gera þessar nýju tryggingarráðstafanir um frekari bönn en gert er með fyrri úrskurðum um, hvað hvert einstakt skip megi salta, og jeg veit ekki hvaða fyrirbrigði það gæti verið. Jeg heyrði, að hv. þm. var að tæpa á því að haga söltuninni eftir því, hvað Norðmenn gerðu fyrir utan landhelgi; ef þeir söltuðu óhæfilega mikið, þá bæri okkur að draga heldur úr. Jeg vil fyrst og fremst mótmæla því, að við eigum hægt með að fylgjast með söltun Norðmanna. Það er að vísu rjett, að nokkrar frjettir berast okkur um það, en hitt skiftir þó mestu máli, að þær eru jafnan nokkuð óábyggilegar, svo að óráð er að leggja þær mjög til grundvallar. Og jafnvel þótt okkur bærust ábyggilegar frjettir um aflabrögð þeirra, þá er illa farið, ef við eigum að fara að haga okkur eftir því. Það mundi leiða til þess, að því meira sem Norðmenn söltuðu, því minna ættum við að salta, og það væri mesta hvötin, sem við gætum gefið Norðmönnum um kapp á þessu sviði við okkur. Nei, við eigum ekkert að láta Norðmenn vita um það, heldur láta Norðmenn búa við óvissu, því að það er líklegra til að draga úr athöfnum þeirra. Jeg segi því, að jeg get ekki sjeð, að neinar líkur sjeu um, að nokkur þau fyrirbrigði komi fyrir á veiðitímanum, sem geri það æskilegt hvað þá heldur nauðsynlegt, að slíkt vald sje selt framkvæmdarstjórn einkasölunnar í hendur, en hitt sje jeg og margir með mjer, að þessu valdi fylgja margir meingallar.

Hv. þm. sagði, að þessi framkvæmdarstjórn myndi aðeins vinna að alþjóðarheill með slíkum ákvörðunum, en hv. þm. er þá búinn að fá eitthvað meiri og betri trú á þeim mönnum, sem hið opinbera útnefnir til starfa fyrir einstaklingana; en jafnvel þótt þessir menn beiti hinni mestu ráðvendni í þessum ráðstöfunum, sem jeg ekki skal efast um, þá vil jeg leyfa mjer að benda á, að hvenær sem kann að verða gripið til þess að stöðva söltun á miðri vertíð, munu ætíð vera þær rógtungum, sem segja: Þetta er gert fyrir Pjetur eða Pál, framkvæmdarstjórana eða einhverja vini þeirra. — Þetta leiðir til óvinsælda fyrir einkasöluna, en alt slíkt verðum við að forðast frá byrjun. Auk þess vil jeg benda hv. þm. á það, að með þessari heimild, ef hún verður notuð, — en annars er hún tilgangslaus — er stofnað til mikils misrjettist, eins og jeg áður hefi sannað.

Hv. þm. Vestm. er ekki staddur hjer í bili, og ætla jeg því aðeins að drepa á það, sem hv. þm. Borgf. sagði í tilefni af ræðu hans. Hv. þm. Vestm. hafði sagt, að það væri betra að salta of mikið heldur en að sæta þeim hömlum, sem lægju í bannheimildinni. Hv. þm. Borgf. bendir á, sem alveg er rjett, að of mikil söltun hefir, samkvæmt reynslunni, valdið miklu verðfalli, en jeg leyfi mjer að benda hv. þm. Borgf. á það, að ef tekin er upp einkasala, þá er lítil hætta á því, og raunar engin, þótt söltun verði nokkuð fram yfir neysluþörf í þeim löndum, sem við seljum til, því ef síldarsalan er á einni hendi, þá er framkvæmdarstjórninni í lófa lagið að tilkynna hinum sænsku skiftavinum sínum, að við flytjum ekki meira en eitthvert ákveðið magn til Svíþjóðar; það, sem fram yfir sje, skuldbindum við okkur til að nota til annars. Það getur líka verið kostur út af fyrir sig að hafa vist síldarmagn, sem maður neyðist til að senda á aðra staði. Með því vinnast, ef til vill, nýir markaðir fyrir síldina.

Hv. þm. Borgf. veittist að minni hl. sjútvn. fyrir þá tillögu, sem hann hefir gert um, að þessi lög komi ekki til framkvæmda fyr en að ári, og sjerstaklega skildist mjer á hv. þm., að honum fyndist það ástæðulaust af okkur minnihlutamönnum að gera þetta, úr því að við hefðum getað fylgt lögunum frá 1926. Jeg vil nú geta þess, að árið 1926 var enn ekki hafist handa um að stofna síldarbræðslustöðvar, og það mátti því kannske þess vegna segja, að okkur ætti ekki að vera vandara um nú en þá að ráðast í slíka einkasölu, þótt ekki sje þegar búið að tryggja landsmönnum nægilegar síldarbræðslustöðvar. En aðstöðumunurinn liggur í því, að þá bólaði ekki á framkvæmdum frá landsmönnum í þá átt, en nú liggur fyrir Alþingi frumvarp um að láta byggja mikla og fullkomna bræðslustöð, og af því að fjöldi útgerðarmanna hefir með yfirlýsingu á fjölmennum fundi óskað þess, að ekki yrði hafist handa um einkasöluna fyr en trygt er, að landsmenn ráði yfir bræðslustöðvum, og með því, að nú þarf ekki lengur að bíða þess um óvist árabil, að þetta fáist, þá sýnist okkur minnihlutamönnum, að nú sje kleift að taka tillit til þeirra óska, sem þessir menn hafa borið fram. En árið 1926 var um það að ræða, hvort betra þætti að veifa röngu trje en engu. Það er þess vegna fult samræmi í þeirri skoðun, sem hefir lýst sjer hjá hv. þm. Vestm. og mjer, þegar við á þinginu 1926 tókum afstöðu til þessa máls, og þess, sem við höfum nú gert í málinu.

Hv. þm. Borgf. endaði ræðu sína með því að segja, að hann myndi greiða þessu frv. atkvæði, ef brtt. hans yrðu samþyktar. Mjer kemur þetta á óvart, því að mjer finst þetta frv. vera svo miklu verra heldur en lögin frá 1926; svo að jeg hjelt, að hv. þm., sem fylgir frjálsri verslun, myndi frekar fylgja okkur, sem heldur viljum láta ráða þessu máli til lykta eftir lögunum frá 1926, og á því er stórkostlegur munur. Eftir þessu frv. er ætlast til þess, að stjórn fyrirtækisins verði ekki í höndum þeirra manna, sem við þessa starfsemi eiga að búa og mest eiga undir því, hvernig hún gengur, en eftir lögunum frá 1926 var aðeins lagt til, að ráðherra skipaði stjórnina um stutt árabil, á meðan „lepparnir“ væru að heltast úr lestinni, en síðan tækju framleiðendurnir sjálfir völdin í sínar hendur.

Fyrir okkur minnihlutamönnum vakir auk þess að þóknast þeirri meirihlutayfirlýsingu, sem komið hefir frá útgerðarmönnum: Að sporna við því, að einkasalan komist á áður en landsmenn hafa fengið umráð yfir síldarbræðslustöðvum, og svo að reyna að hindra það, að slík einkasala sem þessi komist nokkurntíma í framkvæmd, en að málinu verði aftur á móti ráðið til lykta á grundvelli laganna frá 1926.