02.04.1928
Neðri deild: 63. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4096 í B-deild Alþingistíðinda. (3603)

77. mál, einkasala á síld

Haraldur Guðmundsson:

Það er í sjálfu sjer ákaflega fátt, sem jeg þarf að svara. Þó vildi jeg ekki láta hv. þm. Dal. ósvarað með öllu. Hann tók svo til orða, að ekki væri undarlegt, þótt það kæmi við hjartað í mjer og okkur jafnaðarmönnum, þegar fundið væri að síldareinkasölunni. Jeg get nú upplýst hv. þm. um, að hjer er ekki um að ræða ríkisfyrirtæki eða þjóðnýtingu, heldur lögboðinn samvinnufjelagsskap síldarútvegsmanna. Það er ljóst, að ríkið á ekki að reka þetta fyrirtæki fyrir almannafje, heldur verður það gert á kostnað og áhættu útgerðarmanna. — Hv. þm. vildi halda fast við, að með þessu væri hlutur hinna smærri útgerðarmanna gerður lakari, en hinna stærri að mjer skildist betri. Hann tók svo til orða, að þetta væri vernd fyrir hina ríkari. Í fyrri ræðu sinni sagði hann, að hinum smærri útgerðarmönnum væri kastað út á gaddinn, ef þetta. frv. yrði að lögum. Þetta var óskiljanlegt í fyrstu, en nú skýrði hann það svo, að rjetturinn til að veðsetja aflann yrði tekinn af þeim, svo að þeir gætu ekki fengið lánsfje. Jeg veit nú ekki, hversu gott smáútgerðarmönnunum hefir á umliðnum árum verið til fjáröflunar, en ekki hefi jeg heyrt þess getið, að bankarnir hafi staðið þeim opnir til að fá lán til síldveiða. Auk þess fæ jeg ekki sjeð, hver breyting verður á um þetta. Ef þeir hafa áður getað fengið lán út á veð í ófengnum afla, ættu þeir eins að geta fengið það nú gegn loforði einkasölunnar um að láta andvirði innlagðrar síldar ganga til lánardrottins. Jeg held meira að segja, að þetta sje tryggara veð, því að jeg hefi meiri trú á, að salan verði góð hjá einkasölunni en hjá einstaklingunum nú. Bankarnir munu til þessa hafa talið samninga við áreiðanlega kaupendur um kaup á síldinni sínar skástu tryggingar, næst fasteignaveðum og ábyrgðum efnaðra manna.

Í fyrri ræðu minni drap jeg á það, að gallarnir á núverandi fyrirkomulagi gerðu það nauðsynlegt að hefjast handa um að koma á einkasölunni. Jeg benti á, að síldarútgerðin væri að talsverðu leyti rekin fyrir lánsfje frá verkamönnum og sjómönnum. Útgerðarmenn geta ekki greitt þeim kaup jafnóðum, eins og um er samið. Þeir verða að eiga það inni svo og svo lengi, og oft undir hælinn lagt, hvort þeir fá það nokkurntíma. Þetta er algerlega óverjandi fyrirkomulag.

Hv. þm. Dal. sagði, að með þessu frv. væri takmörkuð síldarsöltunin, og þar með dregið úr vinnunni. Jeg hygg, að þetta sje ekki rjett. Jeg hefi fylstu ástæðu til að ætla, að einkasalan geti selt eins mikla síld og áður seldist. Það er aðeins í þeim tilfellum, sem hætta væri á, að meira yrði saltað en markaðurinn þolir, að kipt verður í taumana og söltun stöðvuð. En það væri þá vinningur, því að með því væri komist hjá tapi, sem ella hlyti að verða afleiðingin.

Þá sagði hv. þm., að þegar hann talaði um spillinguna, sem yrði kringum einkasöluna, þá hefði hann ekki átt neitt sjerstaklega við einkasölu á síld, heldur við þá spillingu alment, sem hætt væri við, ef einstakir menn væru settir fyrir fyrirtæki, sem hefðu mjög mikið fjármagn. Jeg játa, að hjer er hætta á ferðum, ef gert er ráð fyrir því, að óhlutvandir menn veljist til forstöðunnar. En hættan er engu meiri hjer en við hvert annað fyrirtæki, sem ræður yfir miklu fjármagni og starfar með leigðum starfskröftum. Hættan er t. d. alveg eins mikil kringum banka. Ef menn gera sjer svona grýlur, hætta þeir seinast að trúa nokkrum manni fyrir nokkrum hlut.

Hv. þm. drap á, að jeg hefði sagt, að samkepnin væri altaf til að lækka vöruverðið. Þetta er ekki alveg rjett haft eftir. Jeg sagði, að þeir, sem dást að frjálsri samkepni, teldu það einn höfuðkost hennar, að hún lækkaði vöruverðið. Þetta væru ein af höfuðrökunum fyrir henni. Jeg benti jafnframt á, að af þessari röksemdaleiðslu leiddi það, að þegar margir menn keptust um að selja síldina, mundi verðið lækka. Þessu getur hv. þm. ekki mótmælt, en hann getur auðvitað farið út í annað, eins og það, að áhættan sje meiri, þegar alt sje á einni hendi og selt í einu lagi. Jeg býst nú raunar við, að einkasalan selji aldrei alla síldina í einu, svo að það jafnist nokkuð, ef mismunandi verð er á ýmsum tímum.

Það var heldur spaugilegt, þegar hv. þm. fór að tala um, að fisksalan væri í ágætu lagi. (SE: Það sagði jeg aldrei). Hv. þm. sagði, að síldarútgerðarmenn mundu taka fiskútflytjendur sjer til fyrirmyndar og gera frjáls samtök sín á milli. Var svo að sjá, sem honum þætti það fögur fyrirmynd. En jeg held, að við höfum sorglega sögu að segja af þessháttar samtökum. Reykvíkingar þekkja allir tvenn slík samtök. Í fyrra sinnið var það Coplandshringurinn og síðan sölusamlagið 1926, sem ekki gekk vel. (ÓTh: Það gekk einmitt mjög vel). Annað sagði hv. þm., þegar rætt var um einkasölu á saltfiski í hv. deild. — Einmitt þessi tvenn sölusamtök sýna, að svona smásamtök standa illa að vígi í samkepninni. Þau bæta oftast helst fyrir þeim, sem utan þeirra eru, og jafnan er því hætt við, að gróðalöngunin ráði meiru en forsjálnin. Alt öðru máli gegnir, ef samtökin ná yfir alla framleiðsluna, eins og hjer er gert ráð fyrir. Þá er samkepnin úr sögunni.

Þá sagði hv. þm., að síldarinnflytjendur í Svíþjóð mundu reyna að halda verðinu niðri fyrir einkasölunni. Það efast jeg ekki um, að sje rjett, — en hvað gera þeir nú? Vilja þeir ekki fá vöruna fyrir það allra lægsta verð, sem þeim er unt? Hv. þm. sagði, að þeir mundu bíða með að kaupa af einkasölunni, þar til hún yrði að fá peninga og gæti ekki lengur beðið.

En er það ekki einmitt þetta, sem þeir gera nú gagnvart hinum einstöku framleiðendum? Bíða þeir ekki þangað til lánardrottnarnir eru farnir að kalla eftir peningum sínum hjá síldarútflytjendum? Fyrst kemur Pjetur og bíður 1000 tunnur fyrir þetta verð, síðan Páll og bíður sínar 1000 tunnur svolítið ódýrari, og svona hver af öðrum. — Nei, til þess að verjast þessum tilraunum erlendra kaupmanna til að lækka verðið er áreiðanlega besta ráðið að hafa lögbundiri samtök um söluna. Því að samkepni seljenda hlýtur altaf að verða til að lækka síldarverðið.

Hv. þm. sagði, að það, sem gera þyrfti, væri ekki svo mjög að skipulagsbinda söluna, heldur fyrst og fremst að útvega nýja markaði. Jeg er honum sammála um, að þess gerist full þörf. En hvort heldur hann, að það sje auðveldara með núverandi ástandi óbreyttu eða með einkasölu? Hv. þm. Borgf. hefir borið fram brtt. um það, að ¾% af andvirði allrar seldrar síldar gangi í markaðsleitarsjóð. Mun jeg greiða atkv. með henni. því að hún getur veitt drjúga hjálp í útvegun markaða, án tilfinnanlegra útgjalda fyrir síldarútvegsmenn eða ríkissjóð.

Jeg get hjer hætt við hv. þm. Dal., en jeg átti nokkur orð ósögð við hv. þm. Vestm. Út af orðum mínum í dag um hótanir Norðmanna um að setja upp flotstöðvar sagði hann, að því færi fjarri, að þeir hefðu látið lenda við orðin ein. Jeg veit, að þeir hafa gert nokkuð að þessu, en jeg veit ekki, hvort hv. þm. Vestm. vill afnema fiskiveiðalöggjöfina fyrir þá sök. Það er alveg hliðstætt því, að af þessum sökum sje hætt við einkasöluna. Hvorttveggja, fiskiveiðalöggjöfin og einkasalan, er sett til þess að tryggja sjerhagsmuni okkar gagnvart útlendingum. Aðstaðan til að salta fyrir utan landhelgi batnar ekki, þótt þessi lög sjeu sett. En annars veit hv. þm. Vestm. það, að undirstaðan undir því, að Norðmenn geti saltað utan landhelgi, er sú, að þeir hafi innhlaup í bræðslustöðvar í landi, til að bræða þá síld, er þeir geta ekki saltað, t. d. vegna óstiltrar veðráttu.

Í sambandi við þetta get jeg vikið nokkrum orðum að hv. þm. Skagf. Hann gat þess, að ekki væri auðvelt að takmarka skipafjölda þann, er „Ægir“ í Krossanesi fengi að kaupa síld af, eftir kjötsamningunum. Jeg mintist á þetta í dag, en til viðbótar skal jeg taka fram, að árið 1922 eða 1923 fær „Ægir“ leyfi til tveggja ára til að kaupa af ótakmörkuðum fjölda skipa, en 1925 er leyfið bundið við 10 skip aðeins og fyrir það sumar eitt. Þetta ljet Krossaneshöfðinginn sjer nægja það ár. Auðvitað var það vel þegið af honum, er hv. þm., sem þá var ráðherra, rýmkaði þetta árið 1926, og þó enn betur þakkað, er hann í fyrra leyfði að leggja upp óskamtað af síld í Krossanesi næstu 2 ár. Árið 1926, 11. maí, fær hún leyfi til að salta af 10 skipum fyrir það sumar. Háttv. þm. orðaði það svo, að verksmiðjan hefði verið óánægð yfir þessari takmörkun. Já, það lítur sannarlega út fyrir það, því að strax 30. júlí, 1½ mánuði seinna, er leyfið rýmkað upp í 25 skip; og enn 1½ mán, seinna, 14. ágúst, er henni leyft að kaupa úr ótakmörkuðum fjölda skipa það sem eftir var sumars. Jeg vil ekki vjefengja orð hv. þm. um það, að verksmiðjan hafi verið óánægð; en jeg verð að líta á hagsmuni íslenskra útgerðarmanna jafnframt. Samningarnir við Norðmenn eru að vísu teygjanlegir eins og hrátt skinn, og jeg býst við, að hv. þm. vilji hanga í því. En um það hygg jeg, að megi deila, hvort hægt sje að teygja þá svona langt. Árin 1925 og 1926 virðist verksmiðjan ætla að sætta sig sæmilega við takmörkun, en við undanlátssemi stjórnarinnar virðist óánægjan aukast; því að árið eftir, 25. júlí, fær verksmiðjan leyfi til að kaupa úr ótakmörkuðum fjölda skipa um næsta tveggja ára bil, — þann lengsta tíma, sem lögin heimila. Mjer finst hæstv. fyrv. stjórn hafa gert hjer meira en sú góða stofnun verðskuldaði.

Í þessu sambandi má geta þess, að það er ekki alllítill fjöldi skipa, sem hafa fengið þessa undanþágu. Jeg var að telja saman leyfin frá 1926, og þau eru veitt 65 skipum, og sjálfsagt gilda þá fleiri leyfi, sem veitt voru fyrir tvö ár. Árið 1927 var svo þýskum manni veitt leyfi til að kaupa frá 20 skipum. Ekki var hann norskur, að það þyrfti að sýna honum velvilja vegna fiskiveiðalöggjafarinnar. Með þessum gífurlegu leyfum, sem veitt hafa verið erlendum skipum, hefir verið sjeð fyrir því, að þau gætu sem best stundað veiðar utan landhelginnar, — farið með afla sinn í verksmiðjuna, þegar illa viðrar, en saltað úti í hafi, þegar vel viðrar.