16.02.1928
Neðri deild: 24. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4177 í B-deild Alþingistíðinda. (3639)

88. mál, atvinnuleysisskýrslur

Flm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Það er að mestu leyti búið að svara hv. 3. þm. Reykv., svo að jeg hefi þar ekki miklu við að bæta. Hann er ákveðinn í því að vera á móti frv., og það þótt atvinnuleysið sje viðurkent, bæði af honum og öðrum.

Þá ætla jeg að víkja nokkrum orðum að atvinnuleysisskýrslunni frá 1926. Hv. þm. hefir í höndum skýrslu, sem gerð var í verkamannaskýlinu í september um haustið 1926. En hún er ekki nema nokkur hluti þeirra skýrslna, sem teknar voru. Eftir að atvinnubæturnar hófust, var haldið áfram skrásetningunni. Skýrslunni var hagað svo, að sem skýrast sæist hagur þeirra, sem skrásettir voru, tekjur, fjölskyldustærð, hve lengi atvinnulaus, íbúðarstærð og leiga o. s. frv. Á það hefir þegar verið bent, að skýrslurnar höfðu þann árangur, að meiri hlutinn í bæjarstjórninni, sem þó voru flokksbræður háttv. 3. þm. Reykv., sá sjer ekki annað fært en að stofna til atvinnubóta. Til þeirra mun hafa verið varið um 100 þús. kr. og 225 menn komust að vinnunni; þar af voru 185 menn, er áttu að sjá fyrir samtals 625 börnum, auk þess 40 einhleypir, er unnu fyrir foreldrum og börnum. Ennfremur stofnaði ríkisstjórnin til atvinnubóta með því að láta vinna að grjótmulningi á tveim stöðum. Ennfremur var unnið við landsspítalalóðina fyrir stjórnarinnar atbeina. Að þessari vinnu komust 67 menn, sem ekki áttu sveitfesti í bænum. Í grjótmulninginn mun hafa verið varið alt að 12 þús. króna. Þessir menn áttu að sjá fyrir 225 börnum.

Jeg þekki áreiðanlega betur ástæður atvinnulausra manna hjer í bænum en hv. 3. þm. Reykv. Jeg er líka viss um það, að hann er ekki svo harðbrjósta, að ekki hefði hann lagt til að auka atvinnubætur, hefði hann aðeins þekt kjör fólksins eins og þau voru í raun og veru.

Frumvarpið, sem hjer er til umr., fer ekki fram á að hefja neinar atvinnubætur. En nái það fram að ganga, munu þær verða óhjákvæmileg afleiðing af því, þegar skýrslurnar sýna svart á hvítu, hvernig ástandið er. Menn munu þá fara að hugsa alvarlega um það að koma skipulagi á atvinnuvegina. Skýrslusöfnunin miðar aðeins að því að auka þekkingu á ástandinu eins og það er á hverjum tíma. Og slík þekking ætti þó ekki að geta orðið til ills.

Hv. þm. talar um, að skráningin muni gefa mönnum falskar vonir. Reynslan sker úr því. En dettur honum í hug, að menn muni streyma hópum saman úr sveitunum aðeins til að láta skrá sig? En væri á annað borð um atvinnuleysi að ræða í sveitunum, mundi fólkið leita sjer atvinnu þar, sem það hjeldi, að hana væri að fá, en síður færi það til kauptúnanna, þegar það heyrði um atvinnuleysi og bjargarskort þar.

Jeg vil undirstrika þau orð hv. þm. Ísaf., að það er nauðsynlegt, að bændur fái að vita, að atvinnubæturnar ljetta ekki lítið á sveitarsjóðum úti um land. Þá munar hreint ekki lítið um að gefa með þurfamönnum hjer í Reykjavík. Og atvinnubætur geta bjargað mörgum manni frá að leita á náðir framfærslusveitar sinnar. Sveitarsjóðunum er því ekki annar betri greiði gerður en að stofna til atvinnubóta hjer í Reykjavík fyrir þá menn, sem annars yrðu að leita fátækrahjálpar.

Hv. 3. þm. Reykv. sakaði okkur jafnaðarmenn um það, að við hvettum fólk til að flytjast til Reykjavíkur. Það er satt, að við viljum ekki loka bæjunum fyrir þeim, sem þangað vilja koma. Við teljum, að öllum eigi að vera frjálst að leita síns brauðs þar, sem þeim þykir ákjósanlegast. Menn væru sviftir frelsi sínu um of, ef ætti að banna þeim það. Það erum ekki við jafnaðarmenn, sem köllum á fólkið hingað. Við höfum ekki talið það okkar hlutverk að reiða hnefann að þeim, sem hingað eru komnir, oftast fyrir áeggjan atvinnurekenda sjálfra. En það er hv. 3. þm. Reykv. og aðrir útgerðarmenn, sem hafa kallað á fólkið. Það eru þeir, sem gert hafa því þann mikla ógreiða að vekja hjá því falskar vonir. Nú eru þeir farnir að sjá, að þeir hafa gert landi og lýð ógreiða með þessu, en vitanlegt er, að þetta var gert í ákveðnum tilgangi af þeim.

Mjer barst skýrsla í hendur áður en jeg kom á þennan þingfund. Þar segir, að 523 skipverjar af 22 togurum sjeu búsettir í Reykjavík, en 144 utanbæjarmenn. Við höfum ekki kallað á þessa menn, þó að við hinsvegar hófum ekki meinast við þeim. Í skýrslunni stendur ennfremur, að á 13 línu- og mótorbátum, sem gerðir eru út hjeðan úr Reykjavík, sjeu skipverjar 171 að tölu. Úr Reykjavík eru 61, en 110 annarsstaðar frá. Þannig er ástandið. Það eru ekki eintómir Reykvíkingar, sem njóta þessarar vinnu — því fer fjarri. Við getum ekki rekið utanbæjarmennina burtu, en við verðum að ráða bót á þessu og finna veilurnar á því skipulagi, sem við eigum við að búa.

Það hefir aðeins einn þm. risið upp til að andmæla frv. Líklega hefir hann talið það skyldu sína og haldið, að hjer væri um bæjarmál að ræða. En þetta er vissulega þjóðmál, sem varðar alla. Þótt einn þm. hafi nú mótmælt frv., þá vonast jeg til, að það fái þær móttökur hjá nefndinni, að það nái fram að ganga.