18.02.1928
Neðri deild: 26. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4188 í B-deild Alþingistíðinda. (3643)

88. mál, atvinnuleysisskýrslur

Hjeðinn Valdimarsson:

Mjer finst dálítið einkennilegt, að hjer stendur upp hver þingmaður á fætur öðrum til þess að mæla á móti frv., sem aðeins fer fram á, að fengin sje áreiðanleg vitneskja um atvinnuhætti hjer á landi. Hvernig stendur á, að íhaldsmenn margir hjer í deildinni eru algerlega andstæðir því að vita, hvernig er háttað um þessa hluti? Það verða þeir þó að viðurkenna, að það mál er eitt af þeim mestu alstaðar í heimi, hvernig eigi að ráða bót á því atvinnuleysi, sem verður alstaðar þar, sem auðmagnið er farið að láta til sín taka. En hvernig er hægt að ráða bót á slíkum meinum, ef enginn maður getur með vissu sagt, hvernig ástandið er á hverjum tíma.

Þó að þetta litla frv. yrði að lögum, er hægt að gera ráð fyrir því, að þegar ábyggilegar skýrslur kæmu, mundu menn hafa mismunandi afstöðu um það, hvað gera ætti. En hinu er illa hægt að mæla gegn, að betra sje að hafa áreiðanlegar skýrslur en engar um staðreyndir.

Það hefir sýnt sig á seinni árum, eftir að togara- og vjelbátaútgerðin fór að aukast, að eitthvað er altaf af atvinnulausu fólki hjer á landi. Þetta er reyndar ekki óeðlilegt; það fylgir meiri háttar atvinnurekstri. Þegar unnið er fyrir heimsmarkaðinn, safnar atvinnureksturinn til sín sæg af verkafólki til vissra staða, svo að atvinnan geti þanist út og dregist saman, eftir markaðshorfum. Þegar fara að verða mikil brögð að atvinnuleysinu, er það hætta fyrir þjóðfjelagið og þarf að taka til sjerstakra ráða. Á meðan ekki eru nema nokkur % atvinnulausir, er hægt að fara aðrar leiðir, sem reyndar flokksmenn okkar í Ed. eru að fara fram á með frv. um atvinnuleysistryggingar. En þegar atvinnuleysið er farið að verða stórkostlegt, þá er ekki hægt að ráða bót með öðru en breyttu skipulagi, hvort sem það er gert á sama hátt og 1880, þegar fólkið var flutt úr landinu, eða gert með því að rækta sveitir, koma upp nýjum atvinnuvegum í kaupstöðum, eða öðrum atvinnubótum. En hvernig sem um þessar úrlausnir fer, þá finst mjer ekkert meiri fjarstæða en það, að atvinnuleysisskýrslur einar hljóti að draga menn í kaupstaði. Hvað er það, sem getur frekar verið aðvörun gegn því að flytja í kaupstað en að sjá það svart á hvítu, að fjöldi manna gangi þar atvinnulaus? En það var þetta, sem hv. þm. Vestm. hjelt fram, að af þessum atvinnuleysisskýrslum myndi leiða fólksfjölgun í kaupstöðum.

Þá gat hann þess, að flokki þeim, sem eftir frv. myndi sjá um að safna þessum skýrslum, mundi hætt við að flytja litaða frásögn af ástandinu. Jeg verð að segja, að mjer finst slíkt ósæmilegar getsakir. — Fulltrúaráð verkalýðsfjelaganna hjer í bænum hefir oftar en einu sinni haft á hendi skýrslusöfnun, bæði fyrir sjálft sig og einnig vegna bæjarstjórnarinnar; hefir hún reitt sig á þessar skýrslur og notað þær þegar atvinnubætur hafa verið gerðar. Aldrei hefir verið minst á það einu orði á neinn hátt, að þetta væru falsaðar eða litaðar skýrslur, enda eru þær útfyltar eftir sögusögn mannanna sjálfra og undirskrifaðar af þeim sjálfum, svo að lituð frásögn er útilokuð.