06.02.1928
Neðri deild: 15. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4221 í B-deild Alþingistíðinda. (3671)

62. mál, atkvæðagreiðslur utan kjörstaða við alþingiskosningar

Magnús Torfason:

Eins og menn vita, þá er atkvæðagreiðsla utan kjörstaða komin til af því, að óskað var eftir, að sem flestir kjósendur gætu greitt atkvæði, þótt þeir ættu ekki kost á að sækja kjörfund. Vitanlega verður að setja það skilyrði, að það sje aðeins leyft þeim, sem einhverra lögmætra orsaka vegna, geta ekki mætt á kjördegi, og að jafnmikið öryggi sje fyrir því, að þeir, sem kjósa utan kjörstaðar, geti neytt kosningarrjettar síns óbrjálað. Í fyrri lögum um þetta efni hafa verið sett ákvæði, sem áttu að tryggja þetta. En þau hafa reynst ónóg. Til þess að bæta úr þeim ágalla er þetta frv. borið fram, og er ekki nema gott eitt um það að segja og gott til þess að vita. En mjer finst, að þessu máli mætti gera betri skil en gert er í frv. Og því vil jeg koma með nokkrar athugasemdir, sem jeg beini sem bendingum til þeirrar hv. nefndar, sem væntanlega fær þetta mál til meðferðar.

Jeg skal þá fyrst taka það fram, að nauðsynlegt er, að pappír, sem notaður er í kjörblöð við kosningar utan kjörstaða, sje vel einkendur, jafnvel einkendur og kjörseðlar, sem notaðir eru á kjördegi. En mikið vantar þó á, að kjörblöð á kjördegi sjeu svo auðkend sem skyldi. Þótt þau sjeu nokkuð auðkend, þá eru þau það ekki meira en svo, að hver prentsmiðja, sem vill, getur búið þau til. Um leið og pappírinn er einkendur, er sjálfsagt, að umslög utan um atkvæði greidd utan kjörstaða sjeu líka auðkend.

Eins og kunnugt er, hafa legið miklar birgðir af þessum kjörgögnum hjá kjörstjórum frá ári til árs án þess þeir sjeu nokkurntíma krafðir reikningsskapar eða endursending heimtuð. Að sjálfsögðu ber að krefjast þess, að gerð sje grein fyrir utankjörstaðakjörgögnum í hvert skifti sem kosning fer fram, eins og kjördagsseðlum, því að það er meiri ástæða til að vanda og tryggja kosningar utan kjörstaða heldur en á kjördegi, þar sem öll kjörstjórnin er til staðar til eftirlits.

Að því er snertir kosningar utan kjörstaða, þá er það vitanlegt, að fyrst og fremst voru ákvæðin sett vegna sjómannastjettarinnar, og skal það síst lastað. Frv. ber þess sjálft ljóslega vott. 1. gr. byrjar svo: „Sjómenn og aðrir þeir“ o. s. frv. Það er í sjálfu sjer hortittur, sem engan rjett á á sjer. Það er engin ástæða til að tilefna frekar eina stjett manna en aðra. Allir eiga vitanlega jafnan rjett, sem svo stendur á fyrir, að staddir eru utan kjörstaðar, þá er kosning fer fram. Þessu er því rjett og sjálfsagt að breyta.

En þar sem sjómannastjettin hefir fyrst og fremst verið höfð í huga við samningu þessara laga, þá er það einkennilegt, að sjómenn nota þennan rjett manna minst. Jeg var um margra ára skeið, eftir að lög um atkvæðagreiðslur utan kjörstaða gengu í gildi, kjörstjóri á Ísafirði. Enginn skipstjóri, það jeg til man, óskaði eftir kjörgögnum. En skrifari minn hefir sagt mjer, að það hafi einu sinni komið fyrir. Sömuleiðis kveðst og bæjarfógetinn í Reykjavík ekki hafa vitað til þess, að skipstjórar hafi beðið um kjörgögn. Þó fylgir sá varnagli, að verið geti, að skrifstofan hafi afgreitt kjörgögn til skipa án vitundar hans. Margir skipstjórar vilja helst vera lausir við að þurfa að annast kosningu í skipi sínu, og hásetar hafa enda ekki þörf fyrir það nema í örfáum tilfellum. Því er sem sje svo háttað, að ákvæði laganna um þetta efni eru miðuð við annarskonar siglingar en hjer tíðkast. Íslenskir sjómenn eru mest og aðallegast á fiskiflota þeim, sem stundar veiðar við strendur landsins og siglir jafnan með stuttu millibili til hafnar. Eiga þeir því eins hægt með að greiða atkvæði hjá sýslumanni eða bæjarfógeta eða hreppstjóra eins og þeir, sem að staðaldri eru í landi, ef þeir á annað borð vilja eða kæra sig um að nota kosningarrjett sinn. Ákvæðin eru gerð fyrir þá, sem eru í siglingum milli heimsálfna, þannig að þeir dveljist vikum saman í hafi og mánuðir líða milli þess, sem þeir stíga í land. En af slíkum siglingum höfum við sama og ekkert að segja, að undanteknum þeim fáu íslensku farmönnum, sem sigla á skipum Eimskipafjelags Íslands. En ferðir þeirra eru ekki lengri en það, að í langflestum tilfellum geta þeir kosið hjer á landi, ef þeir óska þess. Framboðsfrestur er skemstur 4 vikur, og flestir þeirra munu jafnan koma hingað til lands einu sinni á hverjum 4 vikum.

Jeg vil ekki beinlínis gera það að till. minni, að kjörstjóravaldið sje tekið af skipstjórum. En það hefir komið fram, að það má skjóta yfir markið, ef á að fara að elta uppi hvern einasta kjósanda til þess að nota kosningarrjettinn, eins og líka hefir sýnt sig í því, að nú hafa verið numin úr gildi lög, sem færðu hann líka sjúkum mönnum og dauðvona.

Sem sagt tek jeg þetta fram hv. nefnd til athugunar og frekari umhugsunar.