02.03.1928
Neðri deild: 37. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4240 í B-deild Alþingistíðinda. (3683)

62. mál, atkvæðagreiðslur utan kjörstaða við alþingiskosningar

Gunnar Sigurðsson:

Með því að hv. frsm. allshn. er ekki viðstaddur, þá vil jeg leyfa mjer að segja nokkur orð um þær brtt., sem fram eru komnar um þetta frv. Nefndin hefir ekki rætt brtt., og verður það því að mestu frá eigin brjósti, sem jeg segi um þær.

Það er þá fyrsta brtt. hv. þm. A.-Sk., að í stað „raufalína“ komi: riflínur. Það er aðeins orðabreyting, og sje jeg ekkert á móti henni. En viðvíkjandi þeirri efnisbreytinu hv. þm. Ísaf., að í stað „kjörstjóra“ komi: kjörstjórn, og brtt. hv. þm. N.-Ísf, við þá brtt., um að í stað „kjörstjórn“ komi: kjörstjóra ásamt 1 manni úr kjörstjórn, vil jeg geta þess, að þessi breyting, „kjörstjórn“ í „kjörstjóra“, komst inn í frv. vegna þess, að nefndin áleit, að það væri oft erfitt til sveita að ná í alla mennina úr kjörstjórninni. Nefndin mun því helst hlynt brtt. á þskj. 289. Það ætti að vera meðalvegur, því að oftast ætti að vera hægt að ná í annan manninn úr kjörstjórninni.

Þá eru brtt. hv. þm. A.-Sk. Vil jeg leggja til, að þær verði samþyktar, þótt þær geti ekki talist beint nauðsynlegar.

Þá held jeg, að jeg hafi drepið á það helsta í þessum brtt., og sje ekki fyrir hönd nefndarinnar ástæðu til að leggjast á móti því, að þær verði samþyktar.