03.04.1928
Efri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4251 í B-deild Alþingistíðinda. (3693)
62. mál, atkvæðagreiðslur utan kjörstaða við alþingiskosningar
Frsm. (Ingvar Pálmason):
* Jeg hefi ekki miklu að svara. Jeg tók það fram í framsöguræðu minni, að a-liður 5. brtt. mundi mæta andstöðu. Jeg lýsti því, hvernig málið horfði við frá mínu sjónarmiði, og það hefir ekkert breytst að öðru leyti en því, að nú er það komið fram, að ágreiningurinn er gerður vegna eins kaupstaðar. Hv. þm. Ak. segir, að flm. hafi upphaflega ætlað sjer að hafa frv. í svipuðu formi og við leggjum til, en hafi svo breytt því fyrir tilmæli frá sjer. Þetta kann að geta orðið til óþæginda á einstöku stað, en hinsvegar eru kjörstaðir margir, og víðast mun sú leið eiga betur við, er við bendum á. (EF: Af hvaða ástæðu?). Fyrst og fremst vegna þess, að svo er ákveðið í gildandi lögum, það hefir verið notað, menn eru orðnir vanir því og hætt er við, að mistök yrðu á um framkvæmdir, ef því yrði breytt. En það tel jeg ekki heppilegt. Jeg skal ekki andmæla því, að þetta geti orðið bagalegt á Akureyri. Þó kemur mjer það undarlega fyrir, ef verkafólk vill heldur kjósa fyrri part dags, ef kosningstendur lengur en vinnutími. Ef ekki er hægt að afgreiða nema 60 kjósendur á klst., þá er augsýnilegt, að kjósendur verða altaf að bíða nokkuð. Jeg tel því eðlilegra, að upptalningin fari fram í byrjun kosningar heldur en í lok hennar. Jeg get játað, að þetta er ekki stórt atriði, en tel þó það fyrirkomulag betra.
Þá mintist hv. þm. (EF) á villu, er hann taldi vera í brtt. nefndarinnar. Orðin „eða sje búinn að. greiða atkvæði“ taldi hann vera óþörf. Jeg skal ekkert segja um það, en til skaða geta þau að minsta kosti ekki orðið. En ef það er óþarft, þá má fella það burtu við 3. umr. Það getur altaf viljað til, þegar breytingar eru gerðar á frv., að einhverjar leifar verði eftir, sem eru óþarfar, eða eitthvað slæðist með, sem ekki á þar heima lengur.
Jeg sje svo ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frekar; hjer er um ákveðinn skoðanamun að ræða, og það verður að fara sem fara vill. Falli brtt., þá getur frv. orðið að miklum notum samt sem áður; verði þær samþyktar, verður það ekki lakara.
*Ræðuhandr. óyfirlesið.