03.04.1928
Efri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4252 í B-deild Alþingistíðinda. (3694)
62. mál, atkvæðagreiðslur utan kjörstaða við alþingiskosningar
Erlingur Friðjónsson:
Hv. frsm. gat þess, að þar sem kosning stæði lengi fram yfir vinnutíma, þá mundu verkamenn alment draga kosningu sína, þar til vinnutími væri úti. Þetta er ekki rjett. Sje t. d. kosið í þrem kjördeildum, þá er hægt að afgreiða 1250 kjósendur á 6–7 klst. Ættu verkamenn í bæjum eins og Akureyri, Seyðisfirði, Ísafirði og Hafnarfirði að draga að kjósa fram til kl. 6–7, þegar kosning byrjar kl. 12, þá þurfa þeir ekki að ómaka sig á kjörfundinn. Fólkið verður að nota tímann milli kl. 12 og 5 til að kjósa; þá veit það, að kosningin stendur yfir. Eftir það er engin vissa; þá getur kosningin oft verið úti. Reynslan hefir sýnt, að fólk vill ljúka sjer af um borðunartímann, og þegar kapp er í kosningunum, sem oft vill verða, þá er ekki vanalegt, að fólk dragi það fram á kvöld að kjósa. Því er ekki rjett að taka alt að þremur klst. framan af kjörtímanum til að lesa upp atkvæði greidd utan kjörstaðar. Þau eru og svo mismunandi mörg, að það getur tekið einn, tvo eða þrjá tíma að lesa þau upp. Kjörþingið er auglýst að byrja á vissum tíma; þó veit fólkið ekkert um það, hvenær sjálf kosningin byrjar, og ef það kemur snemma, en er hamlað frá að kjósa, þá leiðir það af sjer óánægju; fólkið fer erindisleysu. Jeg hefi enga ástæðu fundið hjá nefndinni fyrir því, að rjettara sje að láta atkvæði greidd utan kjörstaðar ganga fyrir þeim, sem greidd eru á kjörstað.