03.04.1928
Efri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4253 í B-deild Alþingistíðinda. (3695)
62. mál, atkvæðagreiðslur utan kjörstaða við alþingiskosningar
Frsm. (Ingvar Pálmason):
* Jeg skal ekki tefja tímann lengi. Samkvæmt útreikningi hv. þm. Ak., er hægt að afgreiða þar um 180 kjósendur á klst. Það má gera ráð fyrir, að um helmingur kjósenda sje verkafólk, segjum 600 manns. Nú ætlar alt þetta fólk að ljúka sjer af í borðunartímanum, og verð jeg þá að segja, að hann sje nokkuð langur, borðunartíminn á Akureyri. Mjer reiknast svo til, að það verði hátt á fjórða tíma verið að afgreiða þetta fólk.
Jeg held, að það sje engin hætta á því, að kjörfundi verði slitið fyr en vinnutími er úti. Jeg held, að það hafi aldrei komið fyrir. Jeg sje því ekki, að nein hætta geti stafað af þessu ákvæði, en ef til vill verður það til einhverra óþæginda.
*Ræðuhandr. óyfirlesið.