03.04.1928
Efri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4254 í B-deild Alþingistíðinda. (3697)

62. mál, atkvæðagreiðslur utan kjörstaða við alþingiskosningar

Jón Þorláksson:

Jeg tók ekki eftir því, hvort hv. frsm. mintist á það, sem er sjerstaklega mín ástæða fyrir því að vera á móti færslunni. Jeg get ekki viðurkent, að það sje þörf á að færa talningu atkvæða, greiddra utan kjörstaða, aftur fyrir kosninguna. Ef lagfæringar er þörf, þá er sjálfsagt að breyta kosningalögunum svo, að þau heimili kjörstjórn að koma saman fyr á degi til að afgreiða heimagreiddu atkv. En það á ekki að fara þá leið, sem í frv. er farin, að gera það að reglu, að menn geti greitt tvisvar atkvæði, fyrst heima og síðan á kjörstað. Mjer finst með þessu vera dregin hula yfir það, að það er yfirleitt, eða á að vera, óleyfilegur glæpur að greiða tvisvar atkvæði. En þetta verður löglegt samkvæmt frv. og stendur í beinu sambandi við það, að atkvæði, greidd utan kjörstaðar, verða talin eftir kosningu.

Annars fanst mjer hv. þm. Ak. koma því upp, að ekki væri þörf á þessari færslu vegna Akureyrar, þar sem hann gaf þær upplýsingar, að kosningu væri þar lokið um kl. 7, og allir vita, að upptalning atkvæða, greiddra utan kjörstaðar, fer nú fram áður en kosning byrjar. (EF: Nei). Ja, jeg geri ekki ráð fyrir, að kjörstjórn Akureyrar hafi brotið lögin.