20.01.1928
Neðri deild: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (37)

Kosning fastanefnda

Sveinn Ólafsson:

Hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh) hefir mælst til þess, að jeg fyrir hönd kjörbrjefanefndarinnar láti í ljós líkur fyrir því, að hún verði búin að ljúka starfi sínu á mánudag.

Um það er ómögulegt að segja að svo komnu; það er komið undir atvikum, sem ekki eru þekt ennþá, meðal annars því, hvenær hingað berast skjöl, sem snerta þetta mál og væntanlega geta komið á morgun eða sunnudaginn. Í eyðurnar ætla jeg engu frekar að spá um það, hvenær skjölin berast hingað.